Það fór ekki framhjá mörgum þegar hlaupagarpurinn, stórhuginn og ljúfmennið Ránar
Jónsson geystist um þorpið á hverjum einasta degi júlímánaðar sl. sumar. Ránar lét það ekki eftir sér að
hlaupa 10 kílómetra hvern dag mánaðarins til að safna áheitum til kaupa á nýju hlaupabretti í íþróttahúsið, og
naut við það dyggrar aðstoðar Hildar Kristínar Aðalbjarnardóttur og Andreu Bjarkar Sigurvinsdóttur. Viðbrögð
þorpsbúa, nærsveitunga einstaklinga og fyrirtækja létu heldur ekki á sér standa og nú er komið nýtt og glæsilegt hlaupabretti
í húsið. Það ætti því ekki að vera neinum að vanbúnaði að hella sér í heilsuræktina og slíta af
sér aukakílóin eftir jólaóhófið
Af þessu tilefni verður frítt í sal og sund á morgun, föstudaginn 6. janúar, frá kl. 15-19. Brettið verður síðan vígt með formlegum hætti kl. 17 og eru allir boðnir velkomnir.
