Íbúar

Svalbarðshreppur

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 15.02.2012 Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 15.02.2012   Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Daníel

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 15.02.2012

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 15.02.2012

 

Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Daníel Hansen, Elfa Benediktsdóttir, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.

 

 

 

1.      Bréf frá Landgræðslu Ríkisins

 

 Styrkbeiðni vegna verkefnisins Bændur græða landið. Styskbeiðnin hljóðar uppá 110.000 kr

 

Samþykkt samhljóða

 

 

 

2.      Bréf frá Norðurhjara

 

Norðurhjari býður til sölu mynddisk með kynningarmyndbandi af norðausturlandi.

 

Ákveðið að kaupa ekki þennan mynddisk.

 

 

 

3.      Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga nr 793 lögð fram til kynningar.

 

 

 

4.      Fundargerð stjórnar Eyþings frá 16. desember 2011 lögð fram til kynningar.

 

 

 

5.      Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25. janúar 2012 lögð fram til kynningar.

 

 

 

6.      Erindi varðandi tónlistarnám.

 

Nemandi er í tónlistarnámi í Reykjavík og óska foreldrar eftir að Svalbarðshreppur greiði 317.000kr sem er hlutur sveitarfélagsins fyrir skólaárið 2011-2012.

 

Samþykkt.

 

 

 

7.      Bréf frá Landmælingum Íslands

 

Afgreiðslu lokið 27.12.2011.

 

 

 

8.      Skýrsla aðalfundar Eyþings 2011 lögð fram til kynningar.

 

 

 

9.      Bréf frá Ungmennafélagi Íslands                                                              Ungmennafélag Íslands óskar eftir að sveitarfélög veiti íþróttahópum gistingu í skólum á afsláttarkjörum. Ákveðið að láta UMFÍ vita af mögulegri gistingu í Svalbarðsskóla.

 

 

 

10.  Bréf frá Rarik                                                                                                                                              Leigumælar til innra uppgjörs eru í eigu notenda frá síðastliðnum áramótum en verða teknir niður sé þess óskað fram til 1. júní 2012. Lagt fram til kynningar.

 

 

 

11.  Afrit af bréfi, dagsettu 30. desember 2011 til Norðurþings frá Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi lagt fram til kynningar. Efni bréfsins varðar uppsögn á samstarfi um skipulags- og byggingarfulltrúa.

 

 

 

12.  Bréf frá Hagstofu Íslands frá 11. janúar 2012                                                          Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu vegna manntals sem miðaðst við 31. desember 2011. Sigurður Þór tekur málið í sínar hendur.

 

 

 

13.  Önnur mál

 

 

 

a)      Elfa og Sigurður sögðu frá undirbúningsvinnu varðandi niðurrif á sauðfjárveikivarnargirðingu sem liggur frá Krossavík í Þistilfirði að Snartarstöðum í Núpasveit. Unnið er að samstarfi við Norðuþing, Matvælastofnun Íslands og sjálfboðaliða samtökin SEEDS.

 

                                       

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf