Almennt - miðvikudagur 22.febrúar 2012 - Athugasemdir (0)
Um miðjan janúar tók Hannah Hupfeld þessa mynd af Eyruglu sem sat á úreltu jólatrénu útí garði í Holti. Eyruglan er farfugl og ekki mörg ár síðan fyrst var staðfest að hún verpi hérlendis. Hún er þó mjög sjaldséð norðanlands. Fuglafræðingar telja að uglur á Íslandi séu einstaklega margar núna í vetur þar sem þær séu að flýja kuldann í Evrópu.
Hannah er einnig gestur frá Evrópu en hún er frá Suður-Þýskalandi og hefur verið sem au-pair í Holti síðan í ágúst.
Hannah og unga heimasætan í Holti Ása Margrét Sigurðardóttir.
