Íbúar

Svalbarðshreppur

Féttabréf Hestamannafélagsins Snæfaxa kom út á dögunum. Reiðskemma Mikil tímamót eru núna í vetrarstarfsemi á okkar svæði þar sem risin er á

Féttabréf Hestamannafélagsins Snæfaxa kom út á dögunum.

Reiðskemma


Mikil tímamót eru núna í vetrarstarfsemi á okkar svæði þar sem risin er á Gunnarsstöðum reiðskemma 25x16 m ásamt tilheyrandi aðstöðu.
Snæfaxi gerir samning til 25 ára við Jóhannes og Fjólu um rekstur skemmunnar og aðgang að annarri aðstöðu þeirra.
Staðan er þannig að skemmuna er hægt að fara að nota og það eru 4 hestpláss tilbúin og laus í hesthúsinu. Frágangi innan í skemmunni er reyndar ekki lokið, þ.a. endanleg lýsing, klæðning á veggi og fínt yfi rborðsefni eiga eftir að koma, en þó er vel hægt að nota hana til fl estra grunnþarfa. Fyrirhugað er að hefja reiðnámskeið þar fljótlega undir leiðsögn Reynis Atla. Áhugasamir hafi samband við Hildi s. 895-0834.

Kostnaður við notkun verður eftirfarandi;

500 kr/dag fyrir pláss í 2ja hesta stíu og fóður.

100 kr/dag á hvern hest sem notaður er í skemmunni.

Þeir sem vilja nota skemmuna setji sig í samband við Jóa í s. 868-7832.

 

Reiðvegamál

Í reiðvegamálum er það helst að frétta að ekki fékkst styrkur greiddur til framkvæmda árið 2009, vegna aðhalds hjá Vegagerðinni en við gerum okkar besta til að sækja að þeim með að fá fjármagn til þessa árs. Samkvæmt reiðvegaáætlun er næst á dagskrá að ganga frá reiðvegatengingu niður með Fossá og því næst að klára u.þ.b. 1 km kafla við Sætún.
Viðhaldi reiðvega er mikilvægt að sinna og best er að þeir sem mest nota hvern áfanga láti stjórn vita ef þörf er á slíku, svo hægt sem að koma á lagfæringum.

 Góð samvera
Að lokum má þess geta að stjórnin gleðst yfir auknum áhuga og bættri aðstöðu á félagssvæðinu og telur félagið vera á réttri leið til vaxtar og viðhalds áhuga íbúa á hestamennsku.
Höldum góðu orði á félagsskap okkar og njótum samvera hesta og manna!

Dagskrá vetrarins

Stefnt er að eftirfarandi viðburðum ef þátttaka og áhugi er fyrir hendi á félagssvæðinu. Ekki er víst að allir atburðir verði að veruleika og etv bætist fl eira við. Dagsetningar eru settar með til viðmiðunar, þó ganga megi út frá þeim ef ekki eru auglýstar breytingar. Tilgreindir eru ábyrgðarmenn sem kalla munu til fleiri aðila til starfa ef þörf er á og veita allar nánari upplýsingar um viðkomandi atburð.

 

- Folaldasýning í Faxahöll 16.janúar

Samstarf Feykis, Neshesta og Snæfaxa. Tókst með afburðum vel undir yfirstjórn Einars E. Sigurðssonar. Efnilegasta folaldið var valinn Hringur frá Gunnarsstöðum (Ragnar/Laufey)

- Fræðslukvöld Snæfaxa 21.janúar

Reynir Atli var með fræðsluerindi og kíkt var á valin atriði frá heimsmeistaramótinu í Sviss.

 

- Landsmótið á Lóni 6.mars

Ábyrgðarmaður Reynir Atli Jónsson

 

- Járningarnámskeið í febrúar/mars

Ábyrgðarmaður Ragnar Skúlason

 

- Reiðnámskeið með Reyni Atla í febrúar og mars. Hugmyndin er að hafa tilsögn í reiðmennsku sem etv væri þannig uppbyggð að tími væri 1x í viku í 4 vikur. Vonandi næðist í bæði í hóp á Raufarhöfn og Gunnarsstöðum. Nánar auglýst síðar en gott væri að áhugasamir hefðu samband við Hildi í s. 895-0834 svo hægt sé að mæta óskum um tíma og tilhögun.

 

- Skemmtikvöld um miðjan mars

Ábyrgðarmaður Stjórnin

 

- Aðalfundur 29.mars kl. 20°°

Takið kvöldið frá!

Fatamerkingar hjá Fánasmiðjunni

Fánasmiðjan getur merkt fatnað með merki Snæfaxa, hvort sem hann er keyptur hjá þeim eða fólk kemur með eigin föt. Merki félagsins er þannig að eiginleikum að það verður að silkiprenta það og er það helst ekki gert fyrir minna en 20 eintök. Því vill Fánasmiðjan óska eftir að fólk hafi samband ef áhugi er fyrir hendi svo hægt sé að safna saman pöntunum.

Ef pöntuð eru 20 stk = Bak + brjóstmerki myndi merking kosta 800 kr. Þá er bent á að Fánasmiðjan er með til sölu boli, peysur og þægilega softshell flísjakka á fínu verði. Sjá www.fanar.is

 

Ísmót og reiðskemmuopnun hjá Feyki

Laugardaginn 13. febrúar 2010 er stefnt að ísmóti á Klifatjörn við Kópasker.

Keppt verður í tölti og skeiði. Tveir flokkar í boði; stórmeistaraflokkur, fyrir reiðmenn með meira sjálfstraust og meistarafl okkur, fyrir reiðmenn með minna sjálfstraust. Mótið hefst klukkan 14:00 og lýkur á verðlaunaafhendingu og kaffi í reiðskemmunni á Snartarstöðum.

Um kvöldið stendur til að opna reiðskemmuna með formlegum hætti og af því tilefni þessa býður Hestamannafélagið Feykir félögum sínum í Snæfaxa að gleðjast með sér þennan dag. Skemman opnar kl. 20:00 og dagskrá hefst kl. 20:30. Dagskrá kvöldsins er enn í mótun, en gera má ráð fyrir ósvikinni sveitastemningu, glens og gaman... Guðaveigar og léttar veitingar í boði á meðan birgðir endast.

Skráning á Ísmót hjá Úlfhildi í síma 849 0484 eða 465 2169, en frekari upplýsingar um gleðina gefur Elísabet í síma 863-1679.

Aðgangur að Worldfeng

Þeir sem greiða félagsgjald til síns hestamannafélags og eru þannig aðilar að LH, stendur til boða frír aðgangur að Worldfeng. Svo hægt sé að ganga frá þessu fyrir okkar félagsmenn er nauðsynlegt að hafa netfangaskrá félagsmanna.

Því vil ég biðja alla félagsmenn sem nota tölvupóst og vilja fá fréttir og fróðleik frá Snæfaxa, sem og aðgang að Feng, að senda mér tölvúpóst hildurs@hotmail.com.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf