Íbúar

Svalbarðshreppur

Fjölmenni var á jólaballi Kvenfélags Þistilfjarðar, hinni sívinsælu fjölskylduskemmtun! Það viðraði ágætlega til skemmtannahalds í Þistilfirði í gær

Fjölmenni var á jólaballi Kvenfélags Þistilfjarðar, hinni sívinsælu fjölskylduskemmtun!

Það viðraði ágætlega til skemmtannahalds í Þistilfirði í gær 28.des. Það stirndi á snjóinn í logni og heiðskýru veðri.

 Á þessari árvissu skemmtun ríkir ekkert kynslóðabil og allir skemmta sér saman, ungir jafnt sem aldnir. Sá yngsti  var 2ja mánaða og sá elsti 81 árs.

Kvenfélagskonurnar skipulögðu fjölbreytta skemmtidagskrá. Yngstu börnin voru kölluð á svið og héldu á kertaluktum á meðan kvenfélagskonurnar sungu fallegt jólalag. Arnar Freyr 16 ára drengur úr Laxárdal spilaði á harmonikku nokkur lög, og var honum klappað lof í lófa. Fólk lýsti ánægju með að unga fólkið tæki virkan þátt í dagskránni. Að lokum sungu nefndarkonur lagið Jólakötturinn og á meðan tiplaði "jólakötturinn" ábúðarmikill um sviðið!   

Hljómsveitina skipuðu þeir Óli, Jón og Gunnlaugur sem hafa leikið fyrir dansi á þessum skemmtunum í gegn um árin. En það er líka ánægjulegt að geta þess að nú er komin inn nýr hljómsveitarmeðlimur, Þórhallur Agnarsson 12 ára drengur sem spilaði með þeim á jólaballinu, barnabarn þeirra  Jóns og Óla. Magnaður strákur sem spilar snilldarvel á trommur. Fréttir bárust um að sést hefði til rauðklæddra sveina í Hófaskarðinu og væru þeir á leið í Svalbarðsskóla á leið á jólaballið. Skyndilega var barið hressilega á dyr og i salinn komu Hurðaskellir og Kjötkrókur .Var þeim fagnað mjög. Þeir færðu börnunum mandarínur og sælgæti og dönsuðu með samkomugestum í kringum jólatréð. Að lokum urðu þeir að kveðja og halda för sinni áfram til fjalla. Þessu hófi lauk svo samkvæmt venju með kaffisamsæti. Á boðstólum voru gómsætar tertur og margskonar veislubrauð sem heimamenn koma með á jólaballið og úr verður glæsilegt kaffihlaðborð. 

Fleiri myndir frá jólaskemmtuninni í myndasafni þessarar síðu.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf