Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 6.5.2011
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Ársreikningar Héraðsnefndar Þingeyinga og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga 2010 lagðir fram til kynningar.
2. Samþykktir Svalbarðshrepps lagðar fram til kynningar og umræðu. Hreppsnefndarmenn lásu yfir drög að samþykktum og gerðu endurbætur á þeim eftir talsverðar umræður. Oddvita falið að vinna áfram að málinu.
3. Innsend erindi.
a) Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Bréfið varðar umsagnir um frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga.
b) Svarbréf frá Innanríkisráðuneytinu vegna erindis Svalbarðshrepps frá 11. janúar 2011 þar sem Svalbarðshreppur óskaði eftir auknu framlagi úr Jöfnunarsjóði vegna skólaaksturs. Málið í athugun hjá ráðuneytinu.
c) Afrit af bréfi frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga til Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Efni bréfsins er staðsetning héraðsdýralæknis/umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Norðausturumdæmi. Bréfið lagt fram til kynningar.
d) Bréf frá Haraldi Guðmundssyni á Brekknakoti.
Haraldur óskar eftir ályktun frá hreppsnefnd um með hvaða hætti hreppsnefnd telji upprekstri fjár á afrétt frá Brekknakoti best fyrir komið.
Hreppsnefnd vísar í 8.gr. fjallskilasamþykktar nr 618/2010 þar sem segir:
„um upprekstrarrétt á afréttarland sem liggur undir einstaka jörð eða stofnun fer eftir fornri venju eða samningum“.
e) Samningur milli ríkis og sveitarfélaga á svæði Eyþings um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Lagt fram til kynningar.
4. Umræða um afgreiðslu mála á síðasta hreppsnefndarfundi.
Gunnar Guðmundarson lýsti þeirri skoðun sinni að hann sé ósáttur við að hafa ekki fengið að leggja fram mál á síðasta hreppsnefndarfundi undir liðnum önnur mál en sú nýbreyttni var að sá liður var ekki auglýstur á dagskrá fundarins.
5. Önnur mál
a) Gunnar vakti athygli á því að betur mætti koma fram í fundargerðum hvað liggi til grundvallar ákvarðanartöku sveitastjórnar í einstaka málum.
b) Gunnar taldi rétt að athuga hvort ekki væri rétt að senda greiðsluseðla vegna innheimtu reikninga frá Svalbarðshreppi t.d. vegna fasteignagjalda. Oddvita falið að kanna kostnað við slíka innheimtu.
c) Veiðifélög Svalbarðsár og Sandár
Gunnar Guðmundarson er fulltrúi Svalbarðshrepps í veiðifélögum við Svalbarðsá og Sandá og sagði hann frá sínum störfum í veiðfélögunum. Nýlega var gengið frá samningi um leigu á Svalbarðsá fyrir árin 2013-2015. Gunnar taldi að mun betur megi standa að málefnum veiðifélaganna.
d) Hlutabréf í Fjallalambi
Gunnar Guðmundarson vakti athygli á því að Svalbarðshreppur á hlutabréf í Fjallalambi. Í upphafi lagði hreppurinn fé í Fjallalamb til að koma félaginu af stað en nú hefur félagið verið í rekstri um árabil og taldi Gunnar rétt að athuga með möguleika á sölu bréfanna.
