Almennt - mánudagur 01.febrúar 2010 - Athugasemdir (0)
Nú er heimasíðan að komast í gang. Nokkrir eru greinlega farnir að skoða hana og ýmsar skoðanir komnar fram.
Eitt af því sem við heimasíðungar höfum áhuga á er að koma fljótlega í gott lag yfirlit yfir íbúa
sveitafélagsins og þá atvinnustarfsemi sem þar fer fram. Eru íbúar því vinsamlegast beðnir um að senda okkur myndir af býlum
sínum og helstu upplýsingar um íbúa, bústofn og annað sem þeir vilja koma á framfæri. Eins er menn eiga heimasíður að
benda okkur á þær svo setja megi tengil inn á þær.
Svo verður það þannig með heimasíðuna að því meira að tilbúnu efni sem okkur er sent því fyrr og meira kemst inn á vefinn
Upplýsingar sendist á netfangið. svalbardshreppur@svalbardshreppur.is
