Mættir: Sigurður Jens Sverrisson, Ina Leverköhne, Sigríður Jóhannesdóttir, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
Fundur settur kl. 20:00
1. Samrekstur við Langanesbyggð
Sigurður Þór lagði fram nýjan samrekstrarsamning milli Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps, undirritaðan með fyrirvara um samþykki hreppsnefndar. Hreppsnefnd samþykkti samninginn samhljóða.
2. Áheyrnarfulltrúi í velferðar- og fræðslunefnd
Daníel Hansen tilnefndur af hreppsnefnd og Ina Leverköhne til vara.
3. Nýting skólahúsnæðis á Svalbarði
Bjarnveig Skaftfeld hefur skilað lyklunum að Svalbarðsskóla og hætt rekstri ferðaþjónustu í skólanum. Er henni þakkað langt og farsælt samstarf.
Hreppsnefnd ákvað að auglýsa eftir áhugasömum aðilum um nýtingu skólahúsnæðisins.
4. Virkjun Sandár
Erindi barst frá Vesturverki þar sem óskað er eftir viðræðum við Svalbarðshrepp og landeigendur að Sandá um mögulegan virkjunarkost. Hreppsnefnd vill boða fulltrúa Vesturverks á fund með öllum hlutaðeigandi aðilum í Svalbarðshreppi.
5. Styrkbeiðni frá 10. bekk vegna skólaferðalags.
Hreppsnefnd tekur jákvætt í erindið og varaoddvita falið að leggja til styrkupphæð á næsta fundi.
6. Styrkbeiðni frá Landgræðslu ríkisins
Landgræðslan óskar eftir 110.000kr styrk frá Svalbarðshreppi. Hreppsnefnd hafnar erindinu en vill ráðstafa peningnum beint í landgræðsluverkefni við Hófaskarð.
7. Viðhald skólahúsnæðis og umhverfis.
Sigurður Þór upplýsti nefndarfólk um að til stendur að skipta um rúður í húsinu í maí og fara í jarðvegsskipti í planinu fyrir utan húsið. Steft skal að því að klæða planið með olíumöl.
8. Önnur mál.
a) Styrkbeiðni frá Björgunarsveitinni Hafliða
Hreppsnefnd Svalbarðshrepps vill gera Björgunarsveitinni Hafliða mögulegt að komast í stærra húsnæði og óskar eftir erindi frá sveitinni um þörf á styrktarfé þess vegna sem gæti komið inní fjárhagsáætlun Svalbarðshrepps fyrir árið 2020.