Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Daníel Hansen, Elfa Benediktsdóttir, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Umsókn um stofnun lóðar í Krossavík 1.
Erindi frá Þyrí Ragnheiði Svanholt Björgvinsdóttur um stofnun lóðar í Krossavík 1. Nýja lóðin er 0,25 ha að stærð. Sveitarstjórn samþykkir þessa umsókn með fyrirvara um samþykki byggingarfulltrúa.
2. Sauðaneshús.
Langanesbyggð óskar eftir fjárveitingu frá Svalbarðshreppi til reksturs Sauðaneshússins. Erindinu hafnað.
3. Framhaldsdeild Laugaskóla á Þórshöfn.
Langanesbyggð óskar eftir því að Svalbarðshreppur taki þátt í rekstri framhaldsdeildar Laugaskóla á Þórshöfn. Hreppsnefnd Svalbarðshrepps fagnar tilkomu framhaldsdeildar Laugaskóla á Þórshöfn og lýsir yfir vilja til að taka þátt í rekstrinum og hlýtur það að verða partur af nýjum samstarfssamningi. Hins vegar er það álit hreppsnefndar að Ríkið eigi að bera kostnað af rekstri framhaldsdeildarinnar.
4. Samstarfssamningur um skipulags- og byggingarfulltrúa.
Í viðræðum fulltrúa sveitarstjórnar Norðurþings annars vegar og fulltrúa sveitarstjórna Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps hins vegar hefur komið fram að Norðurþing geti ekki efnt skipulagshluta samningsins. Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppur óska eftir lausn frá skipulagshluta samningsins og breytingin taki gildi 1. janúar 2012. Afrit af þessu bréfi sent Svalbarðshreppi.
5. Ársreikningur Nausts 2010 og fundargerð stjórnar Nausts frá 30. september 2011 lögð fram til kynningar.
6. Fundargerð nr 789. frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
7. Saldótölur Svalbarðshrepps fyrir ágúst 2011 lagðar fram. Allir rekstrarliðir Svalbarðshrepps eru innan fjárhagsáætlunar 2011.
8. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar frá 7. september og 5. október lagðar fram til kynningar.
9. Skýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra lögð fram til kynningar.
10. Fundargerðir 223 og 224 í stjórn Eyþings lagðar fram til kynningar.
11. Bréf frá velferðarsjóði Þingeyinga lagt fram til kynningar.
12. Uppgjör fjallskilasjóðs.
Sigurður Þór kynnti uppgjör fjallskilasjóðs 2011. 106.144kr hagnaður er af fjallskilasjóði og bar Sigurður upp þá tillögu að lækka fjallskilagjald um 10kr og verður þá hagnaður fjallskilasjóðs 39.254kr. Hreppsnefnd samþykktir uppgjörið og tillögu Sigurðar um lækkun fjallskilagjalds.
13. Önnur mál
a) Íbúðir aldraðra í Miðholti
Bréf frá Lindu E. Pehrson iðjuþjálfa og Kristjönu Þ. Þorláksdóttur hjúkrunarfræðings varðandi aðgengi úr stofu að verönd við íbúðir aldraðra í Miðholti. Oddviti Svalbarðshrepps ætlar að ræða við Langanesbyggð um að gerð verði kostnaðaráætlun um verkið og væntanlegar úrbætur.
b) Styrkur vegna Hrútadags 2011
Hrútadagsnefnd óskar eftir styrk að upphæð 70.000kr. Hreppsnefnd hafnar erindinu.
c) Hreppsnefnd stefnir að íbúafundi fljótlega á nýju ári.
