Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 11. 8. 2010
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Daníel Hansen og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Sorphirðugjald. Kostnaður jan.-jún. kr 430.385. Oddviti leggur til að gjald verði skipt 1/3 á heimili eða íbúð að meðtöldu veiðihúsum og sumarhúsum og 2/3 verði dreift eftir íbúatölu. Samþykkt samhljóða.
2. Tónlistarskóli. Áætlaður kostnaður er rétt um 1 milljón krónur við að fá Sigurð Daníelsson til að kenna. Hreppsnefnd ákveða að ekki verði boðið uppá tónlistakennslu í vetur. Samþykkt með 4 atkvæðum, Daníel situr hjá.
3. Skýrsla fjallskilastjóra. Fjallskilamál reifuð og Sigurður Þór skipaður fjallskilastjóri. Samþykkt samhljóða.
4. Skipa fulltrúa og varamann í stjórn Nausts. Laufey aðalmaður og Guðrún Hildur Bjarnadóttir varamaður.
5. Kynntar fundargerðir frá stjóra Naustsins. Fyrirhugaðar breytingar eru talsverðar breytingar á rekstri sem hefur verið í nokkrum ólestri. Laufey kynnti.
6. Ráðning oddvita og nefndarlaun. Sigurður lagði fram samning sem skrifað var undir varðandi oddvita. Gunnar leggur til að hreppsnefnd taki kr 0 í starfslaun við árið 2010. Daníel leggur til að greitt verði kr 8.000 fyrir fund en hver og einn geti hafnað launum. Tillaga Gunnars borin upp til atkvæðis. Samþykkt með þremur atkvæðum, Gunnars. Elfu og Laufeyjar. Tillaga Daníels felld, Daníel greiddi einn atkvæði með, Sigurður sat hjá.
7. Önnur mál
Símamál. Símanúmerið 468-1107 er sett í geymslu, netfangsmál rædd.
Leiga á húsnæði hreppsins þ.e. skólans.
Hreppsnefnd leggur til að húsnæði standi íbúum til boða endurgjaldslaust, skilað í sama ástandi en búnaður hússins skuli leigður gegn gjaldi.
Gjaldið er ákveðið, borð kr 500, stóll 100 kr, skjávarpi kr 5.000 og kaffikanna 5.000.
Þjóðlendumál, vettvangsferð Hæstaréttar verði 9. september.
Byggingastyrkur. Axel á Gunnarsstöðum hefur sótt um styrk til húsbyggingar í samræmi við tilboð hreppsnefndar frá 26. febrúar 2009. Hreppsnefnd ákveður að tilboðið gildi út árið 2011.
Skólaakstur. Oddvita falið að skipuleggja skólaakstur.
Gamla samkomuhúsið. Í samræmi við yfirlýsingu hreppsnefndar frá 25.3. 2010 er oddvita falið að ganga frá afhendingu hússins til Fræðaseturs um forystufé, hreppnum að kostnaðarlausu.
Gjaldtaka fyrir þjónustu þarf að endurskoða. Í samræmi við óhagstæða rekstrarniðurstöðu hreppsins verður að gæta aukins aðhalds og huga að auknum tekjumöguleikum. Rætt um mikilvægi þess að gefa út fréttabréf til að upplýsa íbúa um stöðu sveitarfélagsins.
Fundargerð lesin. Fundi slitið 23.30.
