Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 12.1.2011
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Fjárhagsáætlun 2011, seinni umræða
Sigurður Þór fór yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 og þær breytingar sem orðið hafa á henni frá fyrri umræðu þann 13. 12. 2010. Helstu breytingar eru þær að von er um aukið framlag frá Jöfnunarsjóði og hagræðingu í rekstri hjá Langanesbyggð sem lækkar kostnað við samrekstur við Langanesbyggð. Niðurstaða áætlunar 2011 er hagnaður uppá 708.724 kr. Umræður um einstaka liði áætlunarinnar fóru fram samhliða yfirferð en engar alvarlegar athugasemdir né stórbreytingar komu fram.
Fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.
2. Refa- og minkaveiði
Hreppsnefnd ákvað að laun fyrir refa- og minkaveiðar 2011 verði samkvæmt viðmiðunargjaldskrá frá Umhverfisstofnun og oddvita falið að birta verðskrá og reglur um endurgjald fyrir refa- og minkaveiði, á heimasíðu Svalbarðshrepps.
3. Önnur mál
a) Umsókn til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.
Á fundum sveitarstjórnar frá 17. nóvember 2010 og 13. desember 2010 var rætt um mögulega aðstoð frá Eftirlitsnefnd mað fjármálum sveitarfélaga og í samræmi við 75. grein sveitarstjórnarlaga sér sveitarstjórn framá að Svalbarðshreppur gæti lent í fjárþröng á árinu 2011. Fjárhagsáætlun ársins 2011 gerir ráð fyrir hagnaði uppá 708.000kr, taprekstur hefur verið á sveitarfélaginu síðastliðin 5 ár. Í fjárhagsáætlun 2011 eru tekjur áætlaðar í hámarki og gjöld í lámarki. Sveitarstjórn felur oddvita að senda Eftirlitsnefndinni tilkynningu um fjárþröng í samræmi við 75. grein sveitarstjórnarlaga sem hún hefur kynnt sér.
b) Snjómokstur. Elfa gat um að ½ mokstur sé milli Vegagerðarinnar og Svalbarðshrepps í Laxárdal og í Hvamm og mögulega væri hægt að sækja um slíkt hvað varðar Gunnarsstaði.
c) Kátir dagar
Menningar- og ferðamálafulltrúi óskar eftir að Svalbarðshreppur tilnefni fulltrúa í undirbúningsnefnd Kátra daga.
Oddvita falið að hafa samband við tilnefnda og svara erindinu.
d) Lóðir
Hreppsnefnd hefur samþykkt stofnun 3 lóða í Svalbarðshreppi.
1) Lóð undir íbúðarhús á Gunnarsstöðum 5
2) Lóð undir íbúðarhús og verkfærageymslu í Laxárdal 2
3) Lóð undir gistiskála á Ytra-Álandi.
e) Opinn íbúafundur í Svalbarðshreppi 26. janúar 2011
Umræðuefni:
1) Rekstraruppgjör ársins 2010
2) Fjárhagsáætlun 2011
3) Framtíðarhorfur í rekstri
4) Fjallskilamál
Fundargerð lesin upp og fundi slitið.
