Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 14.12.2009
Mættir til fundar eru: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.
1. Útsvarsálagning 2010
Útsvar verður 13,28% árið 2010.
2. Fjárhagsáætlun ársins 2010, fyrri umræða
Stefán fór yfir tölur úr fjárhagsáætlun 2009 en sú áætlun stóðst nokkuð vel og einnig var farið yfir tölur úr samrekstri við Langanesbyggd. Ekki er vitað um sérstakar breytingar á tekjum eða gjöldum á næsta ári og urðu engar snarpar umræður undir þessum lið.
3. Leigusamningar á jörðum hreppsins.
Hreppsnefndarmenn eru sammála um að taka leigusamninga á jörðum hreppsins til endurskoðunar og ákveðið að segja upp núverandi leigusamningi við Ragnar Má um Flautafell. Ákveðið að bjóða afnotarétt jarðanna Flautafells og Kúðár til leigu á nýju ári.
4. Önnur mál
a) Fulltrúar í undirbúningsnefnd Kátra Daga.
Sunna Björk Ragnarsdóttir og Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
b) Skólamáltíðir
Fæði í skólamötuneyti mun kosta 360 kr á dag, skólaárið 2009-2010.
c) Lóðaleigusamningur milli Hestamannafélagsins Snæfaxa og landeigenda á Gunnarsstöðum II var samþykktur af sveitarfélaginu 12.12.2009.
d) Innsend bréf
Bréf frá Jafnréttisstofu þar sem óskað er eftir jafnréttisáætlun frá sveitarfélaginu.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er fjallar um þjónustu við fatlaða.
Bréf frá Stígamótum, beiðni um fjárstyrk. Erindinu hafnað.
Fundi slitið 23:00 eftir nokkurt spjall eftir auglýsta dagskrá.
