Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Ársreikningur Svalbarðshrepps 2010, fyrri umræða
Tekjur á árinu 2010 eru 67.336.523 kr en gjöld 62.121.622 kr. Skuldir og skuldbindingar samtals eru 18.867.357 kr og eigið fé 96.765.605 kr.
Ágreiningur er milli Svalbarðshrepps og Langanesbyggðar um uppgjör samrekstrar á árinu 2010. Í ársreikningi Svalbarðshrepps kemur fram í 11. lið í skýringum eftirfarandi :
„Sveitarstjórn, í samstarfi við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, hefur látið vinna úttekt á útreikningum Langanesbyggðar á hlutdeild Svalbarðshrepps í samrekstri með Langanesbyggð skv.samrekstrarsamningi. Í bráðabirgðaniðurstöðum sem liggja fyrir eru gerðar athugasemdir við útreikninga Langanesbyggðar vegna hlutdeildar Svalbarðshrepps í samrekstri 2009 og 2010. Í uppgjörinu hefur verið tekið tillit til þeirra athugasemda og uppgjör Langanesbyggðar leiðrétt til samræmis. Langanesbyggð hefur ekki samþykkt endurútreikningana. Tekjufærsla í uppgjörinu vegna þessa liðar er 9,9 milljónir“.
Hreppsnefnd vill færa eftirfarandi til bókar:
Á fundi stjórnar samrekstrar 3. maí síðastliðinn þar sem mætt voru Elfa Benediktsdóttir og Sigurður Þór Guðmundsson fyrir Svalbarðshrepp og Gunnólfur Lárusson og Ævar Rafn Marinósson fyrir Langanesbyggð var rætt um mismunandi túlkun sveitarfélaganna á uppgjöri samrekstrar. Var það sameiginleg niðurstaða fundarmanna eins og sjá má í fundargerð stjórnar samrekstrar að Haraldi Líndal Haraldssyni, fyrir hönd Svalbarðshrepps og endurskoðenda Langanesbyggðar væri falið að koma með sameiginlega tillögu að uppgjöri samrekstrar fyrir árin 2009 og 2010. Með bréfi dagsettu 2. júní 2011 sem Haraldi Líndal barst fyrir hönd Svalbarðshrepps hafnar sveitarstjórn Langanesbyggðar leiðréttingarkröfum fyrir árin 2009 og 2010.
2. Önnur mál
a) Fundargerð stjórnar Naustsins frá 3. júní 2011 lögð fram til kynningar.
b) Fulltrúi Svalbarðshrepps á aðalfund Fjallalambs 21.6.2011 verður Sigurður Þór Guðmundsson.
