Íbúar

Svalbarðshreppur

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 17.11.2010

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 17.11.2010

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 17.11.2010

 

Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.

 

 

 

1.      Uppgjör fjallskilasjóðs

 

Sigurður Þór lagði fram bráðabirgðauppgjör fjallskila 2010. Í uppgjörið vantar einn reikning vegna aksturs en hann er áætlaður í uppgjörinu. Samkvæmt uppgjörinu er inneign í fjallskilasjóði kr 68.480.

 

Sigurður ætlar að fullvinna uppgjörið og koma með það til samþykktar á næsta fund.

 

 

 

2.      Brunavarnir í Svalbarðsskóla

 

Elfa las skýrslu eftir úttekt sem Axel Gunnarsson gerði á Svalbarðsskóla í september 2010. Í skýrslunni kemur fram að fjölga þurfi slökkvitækjum og breyta þurfi neyðar-útgönguljósum og setja upp sjálfvirkt brunavarnarkerfi í skólanum.

 

Elfu falið að vinna að málinu.

 

 

 

3.      Sæluhúsið á Öxarfjarðarheiði/ erindi frá Vegagerðinni.

 

Vegagerðin óskar eftir afstöðu Svalbarðshrepps hvað varðar eignarhald á sæluhúsinu á Öxarfjarðarheiði. Hreppsnefnd vill að húsið nýtist frjálsum félagasamtökum með ákvæði um viðhald á húsinu.

 

 

 

4.      9. mánaða uppgjör Svalbarðshrepps.

 

Sigurður Þór fór yfir 9. mánaða uppgjör hreppsins og niðurstaðan er sú 17. nóvember 2010 að lausafjárstaða Svalbarðshrepps er 879.067 kr en útistandandi skuldir eru 1.246.256 kr. Elfa og Sigurður Þór hafa undanfarið farið vandlega yfir samstarfssamninginn með fulltrúum Langanesbyggðar og rætt um breytingar á fyrirkomulagi samstarfssamningsins. Fulltrúar Langanesbyggðar tóku það skýrt fram að ekki er möguleiki á að Svalbarðshreppur segi sig frá einstökum liðum í samstarfssamningnum.

 

Oddvita falið að hafa samband við Samband íslenskra sveitarfélaga og/eða endurskoðenda sveitarfélagsins og óska eftir aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar sem nýtast mun við að bæta rekstur Svalbarðshrepps á næsta ári. Nokkrar umræður sköpuðust um leiðir til hagræðingar og voru settir minnispunktar á blað, t.d. mötuneyti, samrekstur um allan skólann, selja eignir o.fl.

 

 

 

5.      Önnur mál

 

a)      Stjórnlagaþing:

 

Kjörskrá fyrir stjórnlagaþing lögð fram til yfirferðar. Engar athugasemdir

 

 

 

b)      Héraðssamband Þingeyinga sendir inn styrkbeiðni til reksturs skrifstofu á Húsavík. Styrkbeiðnin hljóðar uppá 600 kr/íbúa á ári frá 2011 til 2013. Erindinu hafnað.

 

 

 

c)      Vatnsendi. Eigendur Ytra-Álands óska eftir viðræðum við hreppsnefnd um kaup á jörðinni Vatnsenda.

 

Elfu, Gunnari og Laufeyju falið að ræða við landeigendur á Ytra-Álandi varðandi möguleg kaup þeirra á Vatnsenda.

 

 

 

d)       Fjárhagsáætlun Héraðsnefndar 2011 lögð fram til samþykktar. Hlutur Svalbarðshrepps 62.000 kr. Samþykkt.

 

 

 

e)      Fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvar 2011 lögð fram til samþykktar. Hlutur Svalbarðshrepps er 612.000 kr. Samþykkt.

 

 

 

f)       Fundargerð Héraðsnefndar. Sigurður Þór fór yfir fundargerð Héraðsnefndar.

 

 

 

g)      Snorraverkefnið, verkefni til að kanadísk ungmenni komist til Íslands til að leita upprunans. Erindinu hafnað.

 

 

 

h)      Elfa lagði fram kostnaðartölur vegna ferðalaga á Landsþing sveitarfélaga og Eyþing. Samþykkt.

 

 

 

i)        Sveitarstjórn lýsir yfir mikilli óánægðu með að Vegagerðin hafi tekið veginn milli Kollavíkur og Sveinungsvíkur af vegaskrá. Elfu falið að koma erindinu til Vegagerðarinnar.

 

 

 

j)        Samþykktir/fundarsköp fyrir Svalbarðshrepp. Engar samþykktir eru til fyrir Svalbarðshrepp og er oddvita falið að vinna að málinu.

 

 

 

k)      Skjaldarmerki/einkennismerki sveitarfélagsins. Ákveðið að gerð skjaldarmerkis fyrir Svalbarðshrepp. Gunnar Guðmundarson tekur málið í sínar hendur.

 

 

 

l)        Íbúafundur. Sveitarstjórn stefnir að íbúafundi í fyrrihluta desember 2010.

 

 

 

Fundargerð lesinn upp og samþykkt.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf