Íbúar

Svalbarðshreppur

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 19.12.2011 Mættir til fundar: Daníel Hansen, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 19.12.2011

Mættir til fundar: Daníel Hansen, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.

1. Fjárhagsáætlun Svalbarðshrepps 2012

Sigurður Þór kynnti drög að frárhagsáætlun fyrir árið 2012. Farið var yfir rekstrartölur ársins 2011 og eru þær mjög nálægt fjárhagsáætlun 2011. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2012 er 3 ára áætlun Haraldar Líndal lögð til grunndvallar, þar sem gert er ráð fyrir rekstrarafgangi uppá 3,3 milljónir. Fundarmenn eru sammála um að nýta hluta þess hagnaðar í viðhald fasteigna og bæta því inní áætlunina fyrir næstu umræðu.

2. Fundargerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 7. desember 2011

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3. Markaskrá

Verið er að vinna að nýrri markaskrá. Svalbarðshreppur á mark og vill halda því marki.

Markið er: Hægra eyra, fjöður aftan, vinstra eyra, hvatt. Brennimark NÞ3 og bæjarnúmer 28NÞ3.

4. Röntgentæki á heilsugæslustöðinni Þórshöfn.

Haraldur Ó. Tómasson læknir á Þórshöfn greinir frá því í bréfi frá 5. desember 2011 að verið sé að hleypa af stað söfnun til kaupa á nýjum röntgentækjum. Áætlað kostnaðarverð nýrra tækja er 8,5 milljónir. Óskað er eftir frjálsum framlögum. Hreppsnefnd samþykkir að veita 100.000kr í tækjakaupin.

5. Bréf frá sveitafélaginu Skagafirði dagsett 2. desember 2011

Sveitarfélagið Skagafjörður gerði á fundi þann 30. nóvember 2011 ályktun um tillögu frá starfshópi sjávarútvegsráðherra. Í ályktuninni er því fagnað að veiðigjald verði einn af lögmætum tekjustofnum sveitarfélaga. Bréf þetta sent til kynningar.

6.  Bréf frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga frá 9. desember 2011

Í fjárhagsáætlun sem AÞ. leggur fram er gert ráð fyrir að Svalbarðshreppur greiði 300.523kr til AÞ 2012. Í fjárhagsáætlun Svalbarðshrepps 2012 er gert ráð fyrir þessum kostnaði.

7.  Bréf frá Félagi tónlistaskólakennara frá 6. desember 2011

Í bréfinu kemur fram ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum. Bréfið lagt fram til kynningar.

8.   Tryggingar Svalbarðshrepps

Elfa sagði frá viðræðum sínum við tryggingarfélög og lagði fram gögn í málinu. Elfu falið að klára málið.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf