Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 21.6.2011
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Daníel Hansen, Elfa Benediktsdóttir, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson. Auk hreppsnefndarfólks eru á fundinum, Björn Haraldsson endurskoðandi Svalbarðshrepps og skoðunarmenn Svalbarðshrepps Jóhannes Jónasson og Jóhannes Sigfússon.
1. Ársreikningur Svalbarðshrepps 2010, seinni umræða
Ársreikningnum var varpað uppá vegg og fór Björn Haraldsson ítarlega yfir reikninginn og hafði nokkur orð um rekstur Svalbarðshrepps og framtíðarhorfur. Auk þess sagði hann frá sinni vinnu við reikninginn og svaraði spurningum fundarmanna.
Hreppsnefnd vill bóka eftirfarandi:
„Útreikningar á samstarfsverkefnum byggist á samstarfssamningi milli Svalbarðshrepps og Langanesbyggðar og fundargerð stjórnar samrekstrar frá 24. febrúar 2009.“
Hreppsnefnd samþykkir ársreikning Svalbarðshrepps fyrir árið 2010 með fyrirvara um samþykki skoðunarmanna og vísar að öðru leyti til bókunar um ársreikninginn frá 15.6.2011.
2. Samstarfssamningur sveitarfélaga í Eyþingi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu árin 2011-2013.
Samningurinn lagður fram til kynningar og staðfestingar. Hreppsnefnd samþykkir samninginn samhljóða.
3. Málefni Naustsins
Samkvæmt 3 mánaða uppgjöri Naustsins er halli 6 milljónir umfram fjárhagsáætlun. Fulltrúa Svalbarðshrepps í stjórn Naustsins falið að vinna áfram að málinu og oddvita að taka málið upp í stjórn samrekstrar og lýsir hreppsnefnd Svalbarðshrepps þungum áhyggjum af rekstri Naustsins.
4. Innheimta fasteignagjalda og sorphirðugjalda
Oddvita falið að semja við Sparisjóð Þórshafnar og nágrennis um innheimtu fasteignagjalda og sorphirðugjalda fyrir árið 2011.
5. 2 bréf frá Umhverfisráðuneytinu lögð fram til kynningar
a) Nefnd á vegum Umhverfisráðuneytis vinnur að gerð nýrrar byggingarreglugerðar og óskar nefndin eftir umsögn um framkomin vinnudrög.
b) Nefnd á vegum Umhverfisráðuneytis vinnur að gerð nýrrar reglugerðar um framkvæmdaleyfi og óskar nefndin eftir umsögn um framkomin vinnudrög.
Báðum þessum erindum er vísað til byggingarnefndar.
6. Bréf frá Neytendastofu 8.6.2011 og Umhverfisstofnun 19.5.2011 varðandi leiktæki
Bréfin lögð fram til kynningar og hefur þegar verið brugðist við erindunum og leiktækin skoðuð.
7. Bréf frá Landgræðslu Ríkisins
Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins „Bændur græða landið“ í Svalbarðshreppi á árinu 2011. Landgræðslan óskar eftir styrk að upphæð 110.000kr.
Hreppsnefnd vill sýna Landgræðslu Ríkisins stuðning og þakka það mikla og góða starf sem hún hefur unnið í Svalbarðshreppi og styrkir því Landgræðsluna um 60.000kr.
8. Innsent erindi frá Ólafi Birgi Vigfússyni og Ragnari Skúlasyni
Ragnar vék af fundi undir þessum lið og Sigurður Þór tók við ritun fundargerðar. Bréfritarar óska eftir viðræðum um kaup á jörðinni Vatnsenda á Álandstungu og gera þeir tilboð í jörðina upp á krónur 2.000.000,-
Umræðu um erindið er frestað og Elfu falið að leggja málið fyrir á næsta fundi og afla frekari upplýsinga um málið.
Ragnar kom aftur á fundinn og tók við fundarritun.
9. Kosning oddvita og varaoddvita
Efla réttkjörin oddviti. Sigurður kosinn varaoddviti.
10. Önnur mál
a) Kosning skólanefndar. Bæta þarf 3 varamanni í skólanefnd. Soffía Björgvinsdóttir kosin sem 3 varamaður í skólanefnd.
b) Verk- og þjónustusamningur um bókhaldsþjónustu.
SJ bókhaldsþjónusta ehf, leggur fram verk- og þjónustusamning um bókhaldsþjónustu. Elfu falið að ganga frá samningnum við SJ bókhaldsþjónustu ehf.
