Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 22. janúar 2009 kl 14:00
Mættir eru Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson. Einnig eru gestir á fundinum þeir Reinhard Reynisson og Björn Ingimarsson báðir fyrir hönd Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.
- mál
Reinhard fór yfir stöðu Atvinnuþróunarfélagsins nú og á undanförnum árum, tilgang þess og starfsemi og Björn bætti nokkrum orðum við varðandi verkefni sem félagið hefur komið að á undanförnum árum t.d. Snow Magic í Mývatnssveit. Umræða skapaðist um nýsköpunarstarf í Þingeyjarsýslum og að endingu fóru þeir fram á að Svalbarðshreppur muni verðbæta árlegar greiðslur til félagsins um u.þ.b. 13% fyrir árið 2009.
- mál
Leigutakar við Sandá hafa óskað eftir niðurfellingu á vísitölu fyrir árið 2009. Hreppsnefnd samþykk því að vísitala ársins 2009 verði aðeins greidd að hálfu þ.e.a.s. nota u.þ.b. 6% fyrir árið en vísitalan reiknast þó að fullu í samningnum.
- mál
Fjárhagsáætlun ársins 2009, fyrri umræða
Staðan um áramót 2008-2009, innistæða 18,6 milljónir á peningamarkaðsreikningi og innistæða á hlaupareikningi 6,6 milljónir. Eftir er að borga 4 milljónir í samrekstur, hlutafjáraukningu í Sparisjóð ef af verður 3 milljónir og 180 þúsund í aðra styrki. Einnig var búið að lofa 500.000 í jarðhitaleit. Samtals eru þetta um 7,7 milljónir. Rætt um hvað beri helst að framkvæma á árinu og nokkur umræða skapaðist um viðhald húsa og nýbyggingar í Flögu. Umræðu um fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar.
- mál
Æskulýðs- og menningarfulltrúi
Bréf frá Langanesbyggð þar sem Svalbarðshreppi er boðið að taka þátt í ráðningu æskulýðs- og menningarfulltrúa. Stefáni falið að kynna sér málið, t.d. launakjör og starfslýsingu.
- Bréf frá Langanesbyggð þar sem farið er fram á 100.000 kr fjárveitingu í Sauðaneshús en henni hafnað.
- mál
Bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu.
Óskað er eftir umsögn sveitastjórna um fyrirhugaða sameiningu heilbrigðis- stofnana á Norðurlandi. Oddvita falið að svara erindinu og fara fram á að Þórshöfn verði áfram og undantekningarlaust, læknissetur.
- mál
Bréf frá Norðurþingi um félagsþjónustu en samningur þar að lútandi rennur út um næstu áramót. Hreppsnefndarmenn sammála um að hag sveitarfélagsins sé jafn vel borgið með því að kaupa þessa þjónustu í verktöku en að standa að slíkum samningi.
- mál
Bréf frá Norðurþingi varðandi skólaþjónustu en samningur þar að lútandi rennur út um næstu áramót. Að höfðu samráði við skólastjóra var ákveðið að framlengja samninginn.
- mál
Ráðningasamningur milli Svalbarðshrepps og Björns Haraldssonar, endurskoðanda hreppsreikninga. Stefán kynnti samninginn og var hann samþykktur án athugasemda.
Fundi slitið
