Íbúar

Svalbarðshreppur

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 26.01.2010

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 26.01.2010

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 26.1.2010

 

Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.

 

1.       Fjárhagsáætlun 2010, seinni umræða og þriggja ára fjárhagsáætlun

Eftir nokkra umfjöllun var fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 samþykkt og einnig fjárhagsáætlun næstu þriggja ára.

 

 

2.       Útleiga á Flautafelli og Kúðá

Ákvörðun frestað og vill hreppsnefnd vinna meiri undirbúningsvinnu að málinu og koma á íbúaþingi þar sem jarðamálin verði rædd, bæði leiga á beitarrétti og eignarhald jarða sem nú eru í eigu Svalbarðshrepps. Vonast er til að íbúaþingið verði haldið í seinnihluta marsmánaðar.

 

 

3.       Önnur mál

a)      Fundargerð skólanefndar: Lögð fram til kynningar.

b)      Bréf frá Umhverfisstofnun, tilkynning um að hætt hafi verið við að afnema endurgreiðslur við refaveiðar.

c)       Samningur við Norðurþing um sérfræðiþjónustu. Hreppsnefnd Svalbarðshrepps  telur Svalbarðshrepp vera betur borgið í samstarfi við Norðurþing en að brjóta það samstarf upp varðandi félags- og skólaþjónustu.

d)      Jafnréttisnefnd: Valgerður Friðriksdóttir  á Gunnarsstöðum kosin í nefndina í stað Karenar Rutar.

e)      Riðunefnd: Gunnar Guðmundarson kosinn í þá nefnd í stað Geirs Þóroddssonar.

f)       Fasteignagjöld 2007 að upphæð 30.604 kr felld niður.

 Fleira ekki rætt. Fundi slitið.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf