Íbúar

Svalbarðshreppur

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 30.08.2009

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 30.08.2009

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla kl 20:00 þann 30.08.2009 Mættir til fundar eru:

Gunnar Guðmundarson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.

 

 

1.      mál. Húsgögn í skólann

Stefán las upp úr fundargerð skólanefndar þar sem nefndin er samþykk því að fresta innkaupum á stólum og borðum fyrir yngstu nemendurna vegna þess að tilboðið sem fékkst var ekki ásættanlegt.

 

 

2.      mál. Heimasíðugerð

Hreppsnefnd ákveður að taka tilboði Stefnu í heimasíðugerð fyrir Svalbarðshrepp. Tilboðið hljóðar uppá 160.000 í stofnkostnað og u.þ.b. 6000kr mánaðargjald.

 

 

3.      mál. Tónlistaskóli

Skólanefnd vekur athygli á að hugsanlega væri fjármunum betur varið innan skólans en að greiða í tónlistaskóla sem lítið er nýttur. Oddvita falið að spyrjast fyrir á Þórshöfn hvort mögulegt sé að losna undan greiðslum við tónlistaskóla.

     

4.      mál. Brotajárn

Fyrirspurn frá íbúum varðandi það hvort Svalbarðshreppur taki þátt í vélavinnu við urðun á brotajárni heima á bæjum. Hreppsnefnd vill heldur auglýsa hreinsunarátak sem nær til allra í sveitarfélaginu en að urða fyrir hvern og einn eftir hentugleika.

 

 

5.      mál. Hólaheiðarvegur

Hreppsnefnd Svalbarðshrepps skorar á umhverfisráðherra að heimila, hið fyrsta, framkvæmdir við Klapparós á Hólaheiðarvegi án umhverfismats.

Með því kemst Hólaheiðarvegur í gagnið en eftir þeirri framkvæmd hafa íbúar í héraðinu beðið í áratugi og aðrar leiðir á svæðinu eru alls ekki í viðunandi ástandi. Vegum á svæðinu hefur ekki verið viðhaldið sem skyldi á undanförnum árum þar sem Hólaheiðarvegur á að leysa þá af hólmi.

 

 

6.      mál. Félags- og skólaþjónusta.

Stefán sagði frá því að drög að nýjum samningi um Félags- og skólaþjónustu hefðu verið kynnt sveitarfélögum í Þingeyjarsýslum. Samningsgerð er ekki lokið en oddviti mun fylgjast með málinu.

 

 

7.      mál. Fjallskilareglugerðir/endurskoðun.

Sigurður Þór Guðmundsson kosinn sem fulltrúi Svalbarðshrepps í nefnd sem endurskoðar fjallskilareglugerðir. Til vara er Stefán Eggertsson.

 

 

8.      mál. Önnur mál.

a)      Húsaleiga hjá nýráðnum kennara.

Hreppsnefnd ákveður að nýr kennari greiði 25% af uppsettri húsaleigu.

b)      Hundahreinsun.

Oddvita falið að skoða reglur um hundahreinsun og minna á hundahreinsun í dreifibréfi.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf