Mættir voru: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson
1. Teikningar af viðbyggingu í Laxárdal lagðar fram til samþykktar.
Samþykkt án athugasemda
2. Verk- og þjónustusamningur um bókhaldsþjónustu milli SJ bókhaldsþjónustu ehf og Svalbarðshrepps lagður fram til kynningar og samþykktur.
3. Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra 22. júní 2011 og fundargerð 136. fundar, lagt fram til kynningar.
4. Aðalskoðun leiksvæðis 2011
BSI á Íslandi tók leiksvæðið við Svalbarðsskóla út og gerði athugasemdir við leiksvæðið. Elfu falið að tala við tryggingafélagið og fá nánari upplýsingar um málið svo mögulegt sé að taka ákvörðun um framtíð leiksvæðisins.
5. Fundargerð nr 222 frá Eyþingi lögð fram.
6. Fundargerð nr 788 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lögð fram.
7. Bréf frá umhverfisráðuneytinu frá 30. júní 2011 lagt fram.
Óskað er eftir þátttöku ungmenna á VII. Umhverfisþing sem haldið verður 14. október 2011. Ákveðið að vekja athygli á þessu máli á vefnum svalbardshreppur.is
8. Bréf frá Northern Research Forum lagt fram til kynningar
9. Bréf frá Jafnréttisstofu 15. ágúst 2011 lagt fram
10. Bréf frá Sjóvá lagt fram.
Sjóvá óskar eftir viðskiptum við Svalbarðshrepp. Elfu falið að óska eftir tilboði frá Sjóvá í tryggingar fyrir Svalbarðshrepp.
11. Helstu niðurstöður skýrslu um skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi.
Laufey fór yfir stöðu Naustsins og framtíðarhorfur í rekstri og þá hugmynd að sameina Naustið við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og Hvamm, öldrunarheimilið á Húsavík.
12. Bréf frá Innanríkisráðuneytinu frá 2. ágúst 2011.
Óskað er eftir 3 ára fjárhagsáætlun frá Svalbarðshreppi. Oddvita falið að svara erindinu.
13. Fjallskilamál
Sigurður Þór lagði fram gangnaseðil 2011. Fjallskilagjald hækkar um 10kr og verður 230kr og mat á göngum á Afrétt og á Fjallgarði hækkað í 7500kr. Niðurjöfnun og áætlað uppgjör er fært í fjallskilabók. Oddvita falið að senda út gangnaseðil. Hreppsnefnd ákveður að segja upp samningi um réttaraðstöðu í Garði.
14. Saldólisti fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2011 lagður fram.
Sigurður Þór fór yfir rekstrartölur fyrstu 6 mánaða ársins 2011 og eru þær mjög nálægt fjárhagsáætlun ársins.
15. Önnur mál
a) Laufey spurði eftir möguleikum á að fjarlægja gamlar mæðiveikigirðingar sem eru í Svalbarðshreppi. Oddvita falið að ræða við MATÍS um lausn á málinu.
