Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla kl 20:30 þann 31.3 2009. Mættir til fundar eru:
Friðrik Guðmundsson, Gunnar Guðmundarson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason og Stefán Eggertsson.
- mál. Kosning í kjörstjórn
Drífa Aradóttir og Skúli Ragnarsson kosin í kjörstjórn, þau sitja nú í kjörnstjórn ásamt Eiríki Kristjánssyni.
Varamenn í kjörstjórn:
Guðrún Hildur Bjarnadóttir
Gunnar Þóroddsson
- mál. Kosning varamanns í skólanefnd
Sigurður Þór Guðmundsson kjörinn sem varamaður í skólanefnd.
- mál. Sorphirða í Svalbarðshreppi
Nokkur umræða skapaðist um sorphirðumál og þótti öllum fundarmönnum heldur dýrt að taka tilboði Stefáns Hauks frá 26. febrúar 2009. Fundarmenn lýstu allir vilja sínum til þess að farið verði í flokkun á sorpi í sveitarfélaginu til að minnka umfang á sorpi og bæta ímynd sveitarfélagsins enn frekar. Hafa hreppsnefndarmenn þá í huga Gænfánann sem skólinn er búinn að fá.
Hugmynd kom fram um að Svalbarðshreppur útvegi safnkassa undir lífrænan úrgang á hvert heimili í sveitarfélaginu og hugsanlega gætu börn í sumarvinnu tekið þátt í að smíða slíka safnkassa.
Umræða skapaðist um að taka tilboði Stefáns Hauks um gáma undir pappa annars vegar og almennt sorp hins vegar en jafnframt að reka áróður fyrir flokkun á sorpi til að draga úr kostnaði við flutning á því.
Ákveðið að athuga þann möguleika að sveitarfélagið kaupi gáma undir pappa o.fl. í stað þess að leigja þá.
- mál. Önnur mál
a) Heimasíða fyrir Svalbarðshrepp. Stefán vakti máls á því að nokkrir aðilar hafi nefnt það að koma þurfi upp heimasíðu fyrir Svalbarðshrepp. Allir fundarmenn tóku mjög vel í þá hugmynd og var oddvita falið að vinna að málinu þ.e.a.s að koma upp sjálfstæðri heimasíðu fyrir Svalbarðshrepp.
b) Laun fyrir heimilishjálp. Ákveðið að hækka grunnlaun fyrir heimilishjálp og þrif á skóla í 1100kr á tímann.
c) Gunnar Guðmundarson sagði frá áhuga sem hann hefði orðið var við á að koma upp minjasafni í Svalbarðshreppi, t.d. í tengslum við Svalbarðsskóla. Vitað er um ýmsa hluti hér í sveit sem eiga fullt erindi á slíkt minjasafn. Í Krossavík er enn til talsvert af handsmíðuðum verkfærum af Björgvini í Krossavík.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
