Íbúar

Svalbarðshreppur

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 05.04.2011

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 05.04.2011

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 5.4.2011

 

Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Stefán Eggertsson.

 

 

1.      Kjörskrá

 

Elfa lagði fram kjörskrá til samþykktar. Kjörskrá þessi gildir fyrir kosningar um Icesave þann 9. apríl næstkomandi. Kjörskráin samþykkt án athugasemda.

 

 

 

2.      Í erindi frá 23. febrúar 2011 óskar Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga eftir að Svalbarðshreppur leggi til aukið hlutafé í félagið. Svalbarðshreppur hafnar þessari beiðni.

 

 

 

3.      Samningur milli Svalbarðshrepps og Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Elfa kynnti innihald samningsins. Með samningi þessum verður unnið að úttekt á fjárhagsstöðu Svalbarðshrepps ásamt tillögum að aðgerðum til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins. Samþykktur án athugasemda.

 

 

 

4.      Innsend erind

 

a)      Bréf frá Skipulagsstofnun frá 25. mars 2011 þar sem óskað er eftir aðal- og deiliskipulagi fyrir Svalbarðshrepp fyrir 31. desember 2011.

 

b)      Bréf frá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar frá 9. febrúar 2011 þar sem óskað er eftir ábendingum um fróðleik varðandi sjávarútveg, trébáta o.fl. Bréfið sett á vef Svalbarðshrepps.

 

c)      Bréf frá Fiskistofu 20. mars 2011 er varðar setningu reglna um takmörkun á netaveiði göngusilungs í sjó 2011-2012 vegna sjávarjarðarinnar Ósland.

 

Bréfið lagt fram til kynningar.

 

d)      Elfa kynnti mál Veraldarvina sumarið 2011. Langanesbyggð hafði hafnað komu þeirra en Halldóra Gunnarsdóttir hjá Langanesbyggð segir Veraldarvini samt sem áður koma og vill bjóða Svalbarðshreppi að taka einhvern þátt í starfi með Veraldarvinum í sumar. Elfu falið að vinna að málinu.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf