Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla fimmtudaginn 26. febrúar 2009.
Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður J. Sverrisson og Stefán Eggertsson.
- Fjárveiting í Hvammsheiðarkofa.
Stefán kynnti bréf frá eigendum Hvammsheiðarkofa þar sem þeir fara fram á 500.000kr framlagi frá Svalbarðshreppi til viðbyggingar og endurbóta á kofanum. Sigurður Jens vék af fundi meðan umfjöllun málsins stóð yfir. Fjárbeiðnin var samþykkt af öllum fundarmönnum. Bera skal þessa ákvörðun undir endurskoðanda hreppsreikninga.
- Bréf frá Veiðifélagi Hafralónsár um minkaveiði.
Stefán las bréf frá Reyni Bergsveinssyni sem rekur fyrirtækið Vaskur á bakka. Í bréfinu kemur fram ágæti svokallaðra minkasía og hugmyndir um að setja slíkar síur í Hafralónsá. Hreppsnefnd fagnar því að veiðifélögin í Svalbarðshreppi skuli sýna minkaveiðum slíkan áhuga.
- Samrekstur með Langanesbyggð, menningarfulltrúi o.fl.
Á fundi í samrekstrarráði var ákveðið að Svalbarðshreppur taki þátt í rekstri æskulýðs- og menningarfulltrúa með Langanesbyggð. Kostnaðurinn skiptist eftir íbúafjölda en vægi Svalbarðshrepps er þó ekki nema 0,55. Á fundinn í samrekstrarráði mættu Stefán Eggertsson og Sigurður Jens fyrir hönd Svalbarðshrepps.
- Úrgangsmál
Stefán Haukur Grímsson mættur sem gestur á fundinn. Stefán kynnti kostnaðaráætlun yfir leigu á gámum og sorphirðu í Svalbarðshreppi. Í kostnaðaráætluninni kemur fram leiga á tveimur gámum undir almennt sorp og ein skúffa undir stærra sorp, meðhöndlun á spilliefnum og urðun á sorpinu. Einnig er áætlun um akstur varðandi sorphirðuna. Samtals hljóðar kostnaðaráætlunin uppá 3.615.604 kr. Stefán Haukur sagði ennfremur frá því að líklega væri mögulegt að draga úr aksturskostnaði með því að fylgjast með gámunum og reyna að hafa hámarksnýtingu á þeim. Ef af samningum verður milli Svalbarðshrepps og Stefáns Hauks mun þar koma fram endurskoðunarákvæði sem nýtist ef t.d. Stefán tekur við sorphirðu í Langanesbyggð.
- Styrkur til nýrra íbúðarhússbygginga
Stefán færði í tal hvort hreppurinn eigi ekki að endurnýja tilboðið sem sett var fram 12.desember 2005 að veita stuðning við nýjar íbúðarhúsbyggingar.
Ákveðið að framlengja tilboðið tilboðið óbreytt en hækka tölurnar um 25%
Í fundargerð frá 22.jan 2009 má sjá skuldbindingar upp á 7,7 milj.því til viðbótar
Gerir hreppsnefnd svohljóðandi áætlun:
Byggingastyrkur í Hvammsheiði 500 þúsund
Til sorphirðu 1.500 ---------
Innanhús í skólanum 4.000 ---------
Viðhald og endurbætur í Flögu 2.000 ---------
Áheit á ný íbúðarhús 1.000
7.Önnur mál
Samþykkt að leigja Bjarnveigu Skaftfeld skólahúsið næstkomandi sumar til
gestamóttöku.
Áður en farið var að ræða önnur mál fór Ragnar Skúlason af fundinum til að sinna
Sundkennslu á Þórshöfn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19.45
