Almennt - fimmtudagur 13.maí 2010 - Athugasemdir (0)
Elfa Benediktsdóttir hætti sem formaður og stjórnarmaður, ásamt Lillu. Sólveig kom ný inn í stjórn sem gjaldkeri og Laufey sem formaður, Vilborg verður áfram ritari. Kosið var í nefndir fyrir komandi sumar og vetrarstarf, ýmis mál rædd og slegið á létta strengi. Einnig var Gréta Bergrún tilnefnd sem sérstakur fjölmiðlafulltrúi kvenfélagsins, enda ekki annað hægt fyrir jafn skemmtilegt félag en að hafa einn slíkan við hendina.
Það fór vel á með elstu og yngstu
kvenfélagskonunum, enda ekkert kynslóðabil í kvenfélaginu.
Í lok fundar var brugðið á leik, inn og út um
gluggann...
Fleiri myndir má sjá í myndasafni, frá vetrarstarfi kvenfélagsins.
Virðingarfyllst
Gréta Bergrún, fjölmiðlafulltrúi Kvenfélags Þistilfjarðar
