Íbúar

Svalbarðshreppur

Parísardaman frá Þórshöfn leggur land undir fót! Bryndís Þórðardóttir frá Þórshöfn heldur til Frakklands í vikunni að afloknu jólafríi heima á Þórshöfn.

Parísardaman frá Þórshöfn leggur land undir fót!

Bryndís Þórðardóttir frá Þórshöfn heldur til Frakklands í vikunni að afloknu jólafríi heima á Þórshöfn. En hún hefur dvalið í Frakklandi um árabil. Bryndís er dóttir hjónanna Líneyjar Sigurðardóttur og Þórðar Þórðarsonar.  Þessi sveitasinnaða skemmtilega  stúlka var nokkrum sinnum í sveitadvöl á Ytra-Álandi ásamt fleiri krökkum frá Þórshöfn og nágrannabyggðalögum. Þetta voru líflegir  dagar með skemmtilegum krökkum sem gaman var að kynnast. Við óskum Bryndísi farsældar á nýju ári og góðrar ferðar til Frakklands.

Til gamans eru settar inn nokkrar myndir frá sveitadvölinni.

Bryndís á Gusu, hún tók hana oft til kostanna!

Hér sinnir hún prestverkum þar sem verið er að skíra hvolpana!

Í fjöruferð.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf