Íbúar

Svalbarðshreppur

ÞRÍR MENNINGARSTYRKIR Í SVALBARÐSHREPP Í síðastliðinni viku voru veittir menningarstyrkir Eyþings og fór athöfnin fram á Dalvík. Að þessu sinni  komu

ÞRÍR MENNINGARSTYRKIR Í SVALBARÐSHREPP

Í síðastliðinni viku voru veittir menningarstyrkir Eyþings og fór athöfnin fram á Dalvík. Að þessu sinni  komu þrennir menningarstyrkir í Svalbarðshrepp. Tveir styrkir voru veittir Ferðaþjónustunni á Ytra-Álandi. Annars vegar vegna Rauðanessdagsins og hins vegar vegna dagskrár um Jón Trausta. Þriðji styrkurinn kom til áhugamannahóps um ,,Fræðasetur um forystufé". Sá hópur hyggur á að gera upp gamla félagsheimilið og reka þar Fræðasetur. Fljótlega verður boðað til fundar í sveitinni þar sem þetta verður betur kynnt.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf