Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 6.5.2011
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Ársreikningar Héraðsnefndar Þingeyinga og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga 2010 lagðir fram til kynningar.
2. Samþykktir Svalbarðshrepps lagðar fram til kynningar og umræðu. Hreppsnefndarmenn lásu yfir drög að samþykktum og gerðu endurbætur á þeim eftir talsverðar umræður. Oddvita falið að vinna áfram að málinu.
3. Innsend erindi.
a) Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Bréfið varðar umsagnir um frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga.
b) Svarbréf frá Innanríkisráðuneytinu vegna erindis Svalbarðshrepps frá 11. janúar 2011 þar sem Svalbarðshreppur óskaði eftir auknu framlagi úr Jöfnunarsjóði vegna skólaaksturs. Málið í athugun hjá ráðuneytinu.
c) Afrit af bréfi frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga til Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Efni bréfsins er staðsetning héraðsdýralæknis/umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Norðausturumdæmi. Bréfið lagt fram til kynningar.
d) Bréf frá Haraldi Guðmundssyni á Brekknakoti.
Haraldur óskar eftir ályktun frá hreppsnefnd um með hvaða hætti hreppsnefnd telji upprekstri fjár á afrétt frá Brekknakoti best fyrir komið.
Hreppsnefnd vísar í 8.gr. fjallskilasamþykktar nr 618/2010 þar sem segir:
„um upprekstrarrétt á afréttarland sem liggur undir einstaka jörð eða stofnun fer eftir fornri venju eða samningum“.
e) Samningur milli ríkis og sveitarfélaga á svæði Eyþings um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Lagt fram til kynningar.
4. Umræða um afgreiðslu mála á síðasta hreppsnefndarfundi.
Gunnar Guðmundarson lýsti þeirri skoðun sinni að hann sé ósáttur við að hafa ekki fengið að leggja fram mál á síðasta hreppsnefndarfundi undir liðnum önnur mál en sú nýbreyttni var að sá liður var ekki auglýstur á dagskrá fundarins.
5. Önnur mál
a) Gunnar vakti athygli á því að betur mætti koma fram í fundargerðum hvað liggi til grundvallar ákvarðanartöku sveitastjórnar í einstaka málum.
b) Gunnar taldi rétt að athuga hvort ekki væri rétt að senda greiðsluseðla vegna innheimtu reikninga frá Svalbarðshreppi t.d. vegna fasteignagjalda. Oddvita falið að kanna kostnað við slíka innheimtu.
c) Veiðifélög Svalbarðsár og Sandár
Gunnar Guðmundarson er fulltrúi Svalbarðshrepps í veiðifélögum við Svalbarðsá og Sandá og sagði hann frá sínum störfum í veiðfélögunum. Nýlega var gengið frá samningi um leigu á Svalbarðsá fyrir árin 2013-2015. Gunnar taldi að mun betur megi standa að málefnum veiðifélaganna.
d) Hlutabréf í Fjallalambi
Gunnar Guðmundarson vakti athygli á því að Svalbarðshreppur á hlutabréf í Fjallalambi. Í upphafi lagði hreppurinn fé í Fjallalamb til að koma félaginu af stað en nú hefur félagið verið í rekstri um árabil og taldi Gunnar rétt að athuga með möguleika á sölu bréfanna.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 5.4.2011
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Stefán Eggertsson.
1. Kjörskrá
Elfa lagði fram kjörskrá til samþykktar. Kjörskrá þessi gildir fyrir kosningar um Icesave þann 9. apríl næstkomandi. Kjörskráin samþykkt án athugasemda.
2. Í erindi frá 23. febrúar 2011 óskar Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga eftir að Svalbarðshreppur leggi til aukið hlutafé í félagið. Svalbarðshreppur hafnar þessari beiðni.
3. Samningur milli Svalbarðshrepps og Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Elfa kynnti innihald samningsins. Með samningi þessum verður unnið að úttekt á fjárhagsstöðu Svalbarðshrepps ásamt tillögum að aðgerðum til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins. Samþykktur án athugasemda.
4. Innsend erind
a) Bréf frá Skipulagsstofnun frá 25. mars 2011 þar sem óskað er eftir aðal- og deiliskipulagi fyrir Svalbarðshrepp fyrir 31. desember 2011.
b) Bréf frá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar frá 9. febrúar 2011 þar sem óskað er eftir ábendingum um fróðleik varðandi sjávarútveg, trébáta o.fl. Bréfið sett á vef Svalbarðshrepps.
c) Bréf frá Fiskistofu 20. mars 2011 er varðar setningu reglna um takmörkun á netaveiði göngusilungs í sjó 2011-2012 vegna sjávarjarðarinnar Ósland.
Bréfið lagt fram til kynningar.
d) Elfa kynnti mál Veraldarvina sumarið 2011. Langanesbyggð hafði hafnað komu þeirra en Halldóra Gunnarsdóttir hjá Langanesbyggð segir Veraldarvini samt sem áður koma og vill bjóða Svalbarðshreppi að taka einhvern þátt í starfi með Veraldarvinum í sumar. Elfu falið að vinna að málinu.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 12.1.2011
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Fjárhagsáætlun 2011, seinni umræða
Sigurður Þór fór yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 og þær breytingar sem orðið hafa á henni frá fyrri umræðu þann 13. 12. 2010. Helstu breytingar eru þær að von er um aukið framlag frá Jöfnunarsjóði og hagræðingu í rekstri hjá Langanesbyggð sem lækkar kostnað við samrekstur við Langanesbyggð. Niðurstaða áætlunar 2011 er hagnaður uppá 708.724 kr. Umræður um einstaka liði áætlunarinnar fóru fram samhliða yfirferð en engar alvarlegar athugasemdir né stórbreytingar komu fram.
Fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.
2. Refa- og minkaveiði
Hreppsnefnd ákvað að laun fyrir refa- og minkaveiðar 2011 verði samkvæmt viðmiðunargjaldskrá frá Umhverfisstofnun og oddvita falið að birta verðskrá og reglur um endurgjald fyrir refa- og minkaveiði, á heimasíðu Svalbarðshrepps.
3. Önnur mál
a) Umsókn til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.
Á fundum sveitarstjórnar frá 17. nóvember 2010 og 13. desember 2010 var rætt um mögulega aðstoð frá Eftirlitsnefnd mað fjármálum sveitarfélaga og í samræmi við 75. grein sveitarstjórnarlaga sér sveitarstjórn framá að Svalbarðshreppur gæti lent í fjárþröng á árinu 2011. Fjárhagsáætlun ársins 2011 gerir ráð fyrir hagnaði uppá 708.000kr, taprekstur hefur verið á sveitarfélaginu síðastliðin 5 ár. Í fjárhagsáætlun 2011 eru tekjur áætlaðar í hámarki og gjöld í lámarki. Sveitarstjórn felur oddvita að senda Eftirlitsnefndinni tilkynningu um fjárþröng í samræmi við 75. grein sveitarstjórnarlaga sem hún hefur kynnt sér.
b) Snjómokstur. Elfa gat um að ½ mokstur sé milli Vegagerðarinnar og Svalbarðshrepps í Laxárdal og í Hvamm og mögulega væri hægt að sækja um slíkt hvað varðar Gunnarsstaði.
c) Kátir dagar
Menningar- og ferðamálafulltrúi óskar eftir að Svalbarðshreppur tilnefni fulltrúa í undirbúningsnefnd Kátra daga.
Oddvita falið að hafa samband við tilnefnda og svara erindinu.
d) Lóðir
Hreppsnefnd hefur samþykkt stofnun 3 lóða í Svalbarðshreppi.
1) Lóð undir íbúðarhús á Gunnarsstöðum 5
2) Lóð undir íbúðarhús og verkfærageymslu í Laxárdal 2
3) Lóð undir gistiskála á Ytra-Álandi.
e) Opinn íbúafundur í Svalbarðshreppi 26. janúar 2011
Umræðuefni:
1) Rekstraruppgjör ársins 2010
2) Fjárhagsáætlun 2011
3) Framtíðarhorfur í rekstri
4) Fjallskilamál
Fundargerð lesin upp og fundi slitið.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 13.12.2010
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Daníel Hansen, Elfa Benediktsdóttir, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Fjárhagsáætlun 2011, fyrri umræða
Sigurður Þór kynnti drög að fjárhagsáætlun. Hreppsnefnd fór vandlega yfir áætlunina lið fyrir lið en niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar 2011 sýna tap uppá rúmlega 8 milljónir króna.
Nokkrar umræður sköpuðust um leiðir til að auka tekjur Svalbarðshrepps t.d. með leigutekjum og voru allir hreppsnefndarmenn sammála um að taka þau mál til alvarlegrar athugunar og vinna að þeim málum á næstu mánuðum.
Seinni umræða áætluð 10. janúar 2011
2. Samstarfssamningur við Langanesbyggð.
Hreppsnefnd Svalbarðshrepps samþykkir samhljóða að segja upp samstarfssamningi við Langanesbyggð. Oddvita falið að segja samningnum upp fyrir næstkomandi áramót.
3. Fasteignagjöld 2011.
Fasteignagjöld 2011, A þrep 0,625% og C þrep 1,65%. Samþykkt samhljóða.
4. Útsvar 2011.
Útsvar verður 13,28% með fyrirvara um að lög um málefni fatlaðra verði flutt til sveitarfélaganna en þá verði útsvar 14,48%. Samþykkt samhljóða.
5. Uppgjör fjallskilasjóðs.
Sigurður Þór fór yfir lokauppgjör fjallskilasjóðs. Niðurstaða uppgjörsins er 11.623 kr í hagnað. Uppgjörið samþykkt samhljóða. Fyrir næsta haust verði gangnamatið endurskoðað með það að leiðarljósi að hvert smalasvæði standi undir smalakostnaði á viðkomandi svæði og annar kostnaður fjallskilasjóðs verði að mestu felldur niður.
6. Vatnsendi.
Bréf frá landeigendum Syðra-Álands og Ytra-Álands þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á jörðinni Vatnsenda.
Ragnar vék af fundi og Sigurður Þór tók við ritun fundargerðar. Málið reyfað og oddvita falið að ræða við bréfarrita.
Ragnar kemur aftur til starfa á fundinn
7. Önnur mál
a) Lóð við samkomuhús á Svalbarði.
Elfa lagði fram undirskrifaða yfirlýsingu um leigulóð undir samkomuhúsið á Svalbarði.
b) Vímuvarnarráð.
Elfa las bréf frá vímuvarnarráði frá 27. október þar sem vímuvarnarráð lýsir áhyggjum af niðurskurði í löggæslu á svæðinu og skorar á hreppsnefnd Svalbarðshrepps að bóka mótmæli gegn þessum niðurskurði og sú bókun verði send viðkomandi yfirvöldum.
Hreppsnefnd Svalbarðshrepps hvetur dómsmálaráðuneytið til að bæta úr löggæslu á svæðinu.
c) Veiðimálastofnun.
Elfa las bréf frá Veiðimálastofnun þar sem þeir óska eftir upplýsingum um smávirkjanir í sveitarfélaginu. Virkjanir eru í Sveinungsvík og Borgum og Elfu falið að svara erindinu.
d) Sigurður Þór las bréf frá Gunnlaugi Júlussyni þar sem hann veltir fyrir sér ýmsum leiðum til sparnaðar. Bréfið er skrifað eftir fund sem hreppsnefnd átti með fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna þann 8. desember síðastliðinn.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 17.11.2010
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Uppgjör fjallskilasjóðs
Sigurður Þór lagði fram bráðabirgðauppgjör fjallskila 2010. Í uppgjörið vantar einn reikning vegna aksturs en hann er áætlaður í uppgjörinu. Samkvæmt uppgjörinu er inneign í fjallskilasjóði kr 68.480.
Sigurður ætlar að fullvinna uppgjörið og koma með það til samþykktar á næsta fund.
2. Brunavarnir í Svalbarðsskóla
Elfa las skýrslu eftir úttekt sem Axel Gunnarsson gerði á Svalbarðsskóla í september 2010. Í skýrslunni kemur fram að fjölga þurfi slökkvitækjum og breyta þurfi neyðar-útgönguljósum og setja upp sjálfvirkt brunavarnarkerfi í skólanum.
Elfu falið að vinna að málinu.
3. Sæluhúsið á Öxarfjarðarheiði/ erindi frá Vegagerðinni.
Vegagerðin óskar eftir afstöðu Svalbarðshrepps hvað varðar eignarhald á sæluhúsinu á Öxarfjarðarheiði. Hreppsnefnd vill að húsið nýtist frjálsum félagasamtökum með ákvæði um viðhald á húsinu.
4. 9. mánaða uppgjör Svalbarðshrepps.
Sigurður Þór fór yfir 9. mánaða uppgjör hreppsins og niðurstaðan er sú 17. nóvember 2010 að lausafjárstaða Svalbarðshrepps er 879.067 kr en útistandandi skuldir eru 1.246.256 kr. Elfa og Sigurður Þór hafa undanfarið farið vandlega yfir samstarfssamninginn með fulltrúum Langanesbyggðar og rætt um breytingar á fyrirkomulagi samstarfssamningsins. Fulltrúar Langanesbyggðar tóku það skýrt fram að ekki er möguleiki á að Svalbarðshreppur segi sig frá einstökum liðum í samstarfssamningnum.
Oddvita falið að hafa samband við Samband íslenskra sveitarfélaga og/eða endurskoðenda sveitarfélagsins og óska eftir aðstoð við gerð fjárhagsáætlunar sem nýtast mun við að bæta rekstur Svalbarðshrepps á næsta ári. Nokkrar umræður sköpuðust um leiðir til hagræðingar og voru settir minnispunktar á blað, t.d. mötuneyti, samrekstur um allan skólann, selja eignir o.fl.
5. Önnur mál
a) Stjórnlagaþing:
Kjörskrá fyrir stjórnlagaþing lögð fram til yfirferðar. Engar athugasemdir
b) Héraðssamband Þingeyinga sendir inn styrkbeiðni til reksturs skrifstofu á Húsavík. Styrkbeiðnin hljóðar uppá 600 kr/íbúa á ári frá 2011 til 2013. Erindinu hafnað.
c) Vatnsendi. Eigendur Ytra-Álands óska eftir viðræðum við hreppsnefnd um kaup á jörðinni Vatnsenda.
Elfu, Gunnari og Laufeyju falið að ræða við landeigendur á Ytra-Álandi varðandi möguleg kaup þeirra á Vatnsenda.
d) Fjárhagsáætlun Héraðsnefndar 2011 lögð fram til samþykktar. Hlutur Svalbarðshrepps 62.000 kr. Samþykkt.
e) Fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvar 2011 lögð fram til samþykktar. Hlutur Svalbarðshrepps er 612.000 kr. Samþykkt.
f) Fundargerð Héraðsnefndar. Sigurður Þór fór yfir fundargerð Héraðsnefndar.
g) Snorraverkefnið, verkefni til að kanadísk ungmenni komist til Íslands til að leita upprunans. Erindinu hafnað.
h) Elfa lagði fram kostnaðartölur vegna ferðalaga á Landsþing sveitarfélaga og Eyþing. Samþykkt.
i) Sveitarstjórn lýsir yfir mikilli óánægðu með að Vegagerðin hafi tekið veginn milli Kollavíkur og Sveinungsvíkur af vegaskrá. Elfu falið að koma erindinu til Vegagerðarinnar.
j) Samþykktir/fundarsköp fyrir Svalbarðshrepp. Engar samþykktir eru til fyrir Svalbarðshrepp og er oddvita falið að vinna að málinu.
k) Skjaldarmerki/einkennismerki sveitarfélagsins. Ákveðið að gerð skjaldarmerkis fyrir Svalbarðshrepp. Gunnar Guðmundarson tekur málið í sínar hendur.
l) Íbúafundur. Sveitarstjórn stefnir að íbúafundi í fyrrihluta desember 2010.
Fundargerð lesinn upp og samþykkt.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 11. 8. 2010
Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Daníel Hansen og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Sorphirðugjald. Kostnaður jan.-jún. kr 430.385. Oddviti leggur til að gjald verði skipt 1/3 á heimili eða íbúð að meðtöldu veiðihúsum og sumarhúsum og 2/3 verði dreift eftir íbúatölu. Samþykkt samhljóða.
2. Tónlistarskóli. Áætlaður kostnaður er rétt um 1 milljón krónur við að fá Sigurð Daníelsson til að kenna. Hreppsnefnd ákveða að ekki verði boðið uppá tónlistakennslu í vetur. Samþykkt með 4 atkvæðum, Daníel situr hjá.
3. Skýrsla fjallskilastjóra. Fjallskilamál reifuð og Sigurður Þór skipaður fjallskilastjóri. Samþykkt samhljóða.
4. Skipa fulltrúa og varamann í stjórn Nausts. Laufey aðalmaður og Guðrún Hildur Bjarnadóttir varamaður.
5. Kynntar fundargerðir frá stjóra Naustsins. Fyrirhugaðar breytingar eru talsverðar breytingar á rekstri sem hefur verið í nokkrum ólestri. Laufey kynnti.
6. Ráðning oddvita og nefndarlaun. Sigurður lagði fram samning sem skrifað var undir varðandi oddvita. Gunnar leggur til að hreppsnefnd taki kr 0 í starfslaun við árið 2010. Daníel leggur til að greitt verði kr 8.000 fyrir fund en hver og einn geti hafnað launum. Tillaga Gunnars borin upp til atkvæðis. Samþykkt með þremur atkvæðum, Gunnars. Elfu og Laufeyjar. Tillaga Daníels felld, Daníel greiddi einn atkvæði með, Sigurður sat hjá.
7. Önnur mál
Símamál. Símanúmerið 468-1107 er sett í geymslu, netfangsmál rædd.
Leiga á húsnæði hreppsins þ.e. skólans.
Hreppsnefnd leggur til að húsnæði standi íbúum til boða endurgjaldslaust, skilað í sama ástandi en búnaður hússins skuli leigður gegn gjaldi.
Gjaldið er ákveðið, borð kr 500, stóll 100 kr, skjávarpi kr 5.000 og kaffikanna 5.000.
Þjóðlendumál, vettvangsferð Hæstaréttar verði 9. september.
Byggingastyrkur. Axel á Gunnarsstöðum hefur sótt um styrk til húsbyggingar í samræmi við tilboð hreppsnefndar frá 26. febrúar 2009. Hreppsnefnd ákveður að tilboðið gildi út árið 2011.
Skólaakstur. Oddvita falið að skipuleggja skólaakstur.
Gamla samkomuhúsið. Í samræmi við yfirlýsingu hreppsnefndar frá 25.3. 2010 er oddvita falið að ganga frá afhendingu hússins til Fræðaseturs um forystufé, hreppnum að kostnaðarlausu.
Gjaldtaka fyrir þjónustu þarf að endurskoða. Í samræmi við óhagstæða rekstrarniðurstöðu hreppsins verður að gæta aukins aðhalds og huga að auknum tekjumöguleikum. Rætt um mikilvægi þess að gefa út fréttabréf til að upplýsa íbúa um stöðu sveitarfélagsins.
Fundargerð lesin. Fundi slitið 23.30.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 18.6.2010
1.fundur Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.
1. Kosning oddvita
Elfa Benediktsdóttir kosin með öllum greiddum atkvæðum
2. Kosning varaoddvita
Sigurður Þór Guðmundsson kosinn með öllum greiddum atkvæðum.
3. Kosning ritara
Ragnar Skúlason
4. Fulltrúi í Héraðsnefnd:
Sigurður Þór Guðmundsson
5. Fulltrúi í Eyþing:
Sigurður Þór Guðmundsson
6. Kosning í nefndir:
a) Skólanefnd:
Hildur Stefánsdóttir, Bjarnveig Skaftfeld og Axel Jóhannesson.
Varamenn: Eggert Stefánsson og Bergþóra Stefánsdóttir
b) Byggingarnefnd:
Jóhannes Jónasson, Jónas Pétur Bóasson og Sigurður Þór Guðmundsson
c) Fulltrúi Svalbarðshrepps í Veiðifélögum Sandár og Svalbarðsár:
Gunnar Guðmundarson
d) Fulltrúi í íþrótta- og tómstundaráð:
Eggert Stefánsson
Varamaður: Ragnar Skúlason
e) Kjörnefnd:
Drífa Aradóttir, Eiríkur Kristjánsson og Skúli Ragnarsson
Varamenn: Daníel Hansen og Fjóla Runólfsdóttir.
f) Bókasafnsnefnd:
Ina Leverkhöne, Guðrún Ragnhildur Aradóttir og Stefán Eggertsson.
g) Fulltrúi í Fossorku:
Ragnar Skúlason
h) Vímuvarnaráð:
Hjördís Matthilde Henriksen
i) Skoðunarmenn hreppsreikninga:
Jóhannes Sigfússon og Jóhannes Jónasson.
7. Önnur mál:
a) Erindi frá Sunnu Björk Ragnarsdóttur
Sunna er að vinna fyrir Þekkingarnet Þingeyinga að því að skrá munnmæla- og þjóðsögur úr Þistilfirði. Þekkingarnet Þingeyinga óskar eftir samstarfi um upplýsingaskilti við Frakkagil. Þekkingarnet Þingeyinga leggur til allar heimildir sem aflast úr þessari vinnu og óskar eftir að Svalbarðshreppur leggi til skiltið.
b) Vinnuskóli:
Elfa og Laufey taka málið að sér.
c) Vinnufundur
Hreppsnefnd ákveðin í að hittast fljótlega á vinnufundi til að fara yfir fjármál sveitarfélagsins og skoða þá samninga sem sveitarfélegað er bundið af.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 2.3.2010
Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.
1. Kjörskrá lögð fram.
Engar athugasemdir gerðar við kjörskrá en athuga þarf hvort erlendar húsmæður í sveitarfélaginu séu með íslenskan ríkisborgararétt.
2. Fjallskilasamþykkt.
Hreppsnefnd fékk drög að nýrri fjallskilasamþykkt fyrir landsvæði frá Vaðlaheiði að Vopnafirði. Hreppsnefd gerði nokkrar athugasemdir og var oddvita falið að koma þeim til réttra aðila.
3. Ósland.
Húseigendum að Óslandi verður leigð 1000 fm lóð umhverfis húsið til 40 ára.
4. Fossorka
Ragnar Skúlason kosinn sem fulltrúi hreppsins á aðalfund Fossorku 2010 og Stefán Eggertsson varamaður.
5. Ferðaþjónusta
Bjarnveig Skaftfeld fær skólahúsnæðið á Svalbarði til afnota í sumar undir ferðaþjónustu.
Fundi slitið.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 26.1.2010
Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.
1. Fjárhagsáætlun 2010, seinni umræða og þriggja ára fjárhagsáætlun
Eftir nokkra umfjöllun var fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 samþykkt og einnig fjárhagsáætlun næstu þriggja ára.
2. Útleiga á Flautafelli og Kúðá
Ákvörðun frestað og vill hreppsnefnd vinna meiri undirbúningsvinnu að málinu og koma á íbúaþingi þar sem jarðamálin verði rædd, bæði leiga á beitarrétti og eignarhald jarða sem nú eru í eigu Svalbarðshrepps. Vonast er til að íbúaþingið verði haldið í seinnihluta marsmánaðar.
3. Önnur mál
a) Fundargerð skólanefndar: Lögð fram til kynningar.
b) Bréf frá Umhverfisstofnun, tilkynning um að hætt hafi verið við að afnema endurgreiðslur við refaveiðar.
c) Samningur við Norðurþing umsérfræðiþjónustu.Hreppsnefnd Svalbarðshrepps telur Svalbarðshrepp vera betur borgið í samstarfi við Norðurþing en að brjóta það samstarf upp varðandi félags- og skólaþjónustu.
d) Jafnréttisnefnd: Valgerður Friðriksdóttir á Gunnarsstöðum kosin í nefndina í stað Karenar Rutar.
e) Riðunefnd: Gunnar Guðmundarson kosinn í þá nefnd í stað Geirs Þóroddssonar.
f) Fasteignagjöld 2007 að upphæð 30.604 kr felld niður.
Fleira ekki rætt. Fundi slitið.
