Íbúar

Grunnskólinn

Grunnskólinn

Fréttir

DANSKENNSLA


Íþróttakennarinn okkar hún Anna Rún kemur á fimmtudögum og kennir hópnum dans. Þetta eru hópdansar, kúrekadans og fleira. Afrakstur kennslunnar verður sýndur á Góugleði skólans.

TÓNLISTARKENNSLA


Í dag hófst tónlistarkennsla í skólanum. Við höfum ráðið tónlistarkennarann í Langanesbyggð til að koma hér einu sinni í viku. Hún heitir Kadri Giannakaina Laube og er frá Eistlandi. Hún getur kennt á flest hljóðfæri en nemendur Svalbarðsskóla eru að læra á píanó, fiðlu, gítar og blokkflautu.

SKÓLI BYRJAÐUR


Venjulegt skólahald hófst í morgun að loknu jólaleyfi. Nemendur voru fegnir að hitta aftur skólafélaga og vini. Ekki dró úr ánægjunni að veður til útileikja er hið ákjósanlegasta, góður snjór til að byggja úr og svolítill skafrenningur. Mikið var byggt úr snjónum í dag.

Þá fengum við góða heimsókn en Ragnheiður Rós sem var nemandi hér í fyrra og er á Akureyri í vetur kom í heimsókn. Urðu þar fagnaðarfundir.


JÓLAKVEÐJUR


Nemendur, foreldrar og aðrir velunnarar Svalbarðsskóla fá sendar bestu jólakveðjur frá starfsfólki skólans.

Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf