Íbúar

Grunnskólinn

Febrúarfréttabréfið Tíminn flýgur áfram og alltaf nóg að gera. Foreldrafélagið er búið að skipuleggja sitt öfluga starf og er það auglýst hér. Þið takið

Febrúarfréttabréfið

Tíminn flýgur áfram og alltaf nóg að gera. Foreldrafélagið er búið að skipuleggja sitt öfluga starf og er það auglýst hér. Þið takið frá þá daga sem ætlaðir eru fyrir auglýstar skemmtanir.

Veðrið er ansi risjótt þessa dagana en þrátt fyrir það hefur skólastarf verið með eðlilegum hætti. Í gömlum húsgangi segir.                                     

  Þurr skyldi Þorri,

                                                 þeysin Góa, 

 

                                                votur Einmánuður, 

                                     þá mun vel vora.

Ef þessi gamli húsgangur spáir rétt þá líst mér ekki á vorið því ekki er þurrkurinn á Þorranum. Við verðum bara að vona að þetta gangi ekki eftir. Ýmsir aðrir spádómar eru til og vafalaust ber ekki öllum saman.
Svo er annað að veðurfar er misjafnt milli landshluta og þessi húsgangur er af vestanverðu landinu  og þar er ekki sama veðurfar og hér.

                                                            ANNASKIPTI 

Um miðjan febrúar verða annaskipti i skólanum. Þá gefum við nemendum umsagnir og heimsækjum þá til að afhenda þeim umsagnirnar og spjalla við þá og foreldra þeirra. 

SAGA

Einu sinni var átta ára strákur sem fór í réttirnar. Hann fór að hjálpa til við að draga lömbin í dilka. Allt í einu sá hann stóran lambhrút og fór á bak honum. Hann tók í hornin og reið um alla réttina, alveg þangað til að hann datt af baki en hann meiddi sig ekki.                                                                                        Hlynur Andri 

ÓVEÐUR

Í þessari stuttu ritgerða ætla ég að fjalla um óveður. 

Það hefur oft komið mikið óveður í okkar umhverfi. Óveður með mikilli ofankomu kom einu sinni á Þórshöfn og skapaðist þá mikið fannfergi og ófærð. Þá þurftu íbúar sumir hverjir að labba á húsþökum og grafa sig niður til að komast í húsin sín. Vindhraðinn í þessu óveðri var 12-14 vindstig (í meturm er það u.þ.b. 25-30 m/sek.). Svo kom hér annað óveður með 35-45 metrum í kviðum. Þennan dag fauk þak af húsi og lenti á grunnskólanum á Þórshöfn og það þurfti stórtæk vinnutæki til að halda húsinu niðri en þetta hús var ónýtt eftir þessar hamfarir og það rifið og fjarlægt. Partur af öðru húsþaki í bænum fauk og miklar skemmdit urðu á húsum og hlutum um allan bæ. 

Óveður myndast þegar brot af stormsveipi gengur yfir landið og líka þegar lægð er mjög djúp, u.þ.b. 1030-1040 millibör. Þá myndast þrýstilínur frá lægðinni og aðrar þrýstilínur myndast frá hæðinni. Eftir því sem styttra er á milli þrystilínanna er meiri vindur. 

Í þessari ritgerð hef ég fjallað um veðjur, hvernig mikill vindur myndast og hvaða afleiðingar óveður getur haft. 

                                                                    Guðbrandur Sölvason 

 

AMENNUR FORELDRAFUNDUR 

 

 

Við ætlum að halda fund með foreldrum og starfsfólki kl.18:00 mánudaginn 14.febrúar. Þar ræðum við um skipulag til vorsins, stöðuna í skólanum í dag og horfum til framtíðar.

 

 

FRÁ FORELDRAFÉLAGINU

 

 

Nú fer að hefjast 4 kvölda félagsvist og verður spilað eftirtalda daga: 

Miðvikudaginn 16.febrúar kl.20:00. 

Miðvikudaginn 23.febrúar kl.20:00. 

Miðvikudaginn 2.mars kl.20:00. 

Miðvikudaginn 9.mars kl.20:00. 

Góugleði verður haldin í skólanum föstudaginn 18.mars kl.19:00. 

Áætlað er að hafa hana ekki síðri en á síðasta ári, boðið verður upp á lambakjöt og meðlæti, góð skemmtiatriði og dans á eftir. Þegar nær dregur verður þetta allt auglýst nánar á heimasíðu skólans og með dreifibréfi.


MATSEÐILL Í FEBRÚAR 

1.2., þriðjudagur: Soðinn fiskur, kartöflur, hamsar, rúgbrauð. 

2.2., miðvikudagur: Kjötsúpa. 

3.2., fimmtudagur: Fiskbollur, kartöflur, sósa og salat. 

4.2., föstudagur: Grjónagrautur og slátur. 

7.2., mánudagur: Matur að vali Brands. 

8.2., þriðjudagur: Hakk og spaghetti. 

9.2., miðvikudagur: Steiktur fiskur, kartöflur og hrásalat. 

10.2., fimmtudagur: Kubbasteik, kartöflur, baunir, sósa og sulta. 

11.2., föstudagur: Matur að vali Hlyns Andra. 

14.2., mánudagur: Súpa, brauð og salatbar. 

15.2., þriðjudagur: Kjötbollur, kartöflur, sósa og grænmetissalat. 

16.2., miðvikudagur: Fiskréttur, salat og ávaxtabakki. 

17.2., fimmtudagur: Kjöt í karrý og karamellubúðingur í eftirrétt. 

18.1., föstudagur: Lasanja, kartöflumús og salat. 

21.2., mánudagur: Fiskborgarar, sósa og salat. 

22.2., þriðjudagur: Svikinn héri og meðlæti. 

23.2., miðvikudagur: Gúllas, kartöflur og salat. 

24.2., fimmtudagur: Fiskbollur, kartöflur, sósa og salat. 

25.2., föstudagur: Bjúgur, kartöflumús og ávaxtabakki. 

28.2., mánudagur: Grjónagrautur og slátur. 

Matseðill getur breyst eða réttir færst til ef eitthvað óvænt kemur upp á.

                                                                                                      Kveðja, Bjarnveig

 

 



Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf