Árleg fegurðarsamkeppni gimbra var haldin í Fjárhúsunum á Svalbarði síðastliðinn sunnudag. Það eru foreldrafélag Svalbarðsskóla og Fjallalamb sem standa að þessari sýningu. Eins og áður voru margar gimbrar mættar til leiks. Úrslitin urðu þau að flottustu skreytingua hafði gimbrin Ronja sem sýnd var af eiganda hennar Ólafi Ingva Sigurðssyni í Holti, sú þráasta var Næla í eigu Klöru Kristinsdóttur í Brúarási, sú vinsælasta kosin af áhorfendum var Skessa sem Margrét Brá Jónasdóttir sýndi og fegursta gimbrin árið 2011 var kosin Gola í eigu Ómars Vals Valgerðarsonar á Gunnarsstöðum. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir þáttökuna. Senuþjófur sýningarinnar var óvæntur gestur, sauðurinn Dorri á Ytra-Álandi sem hreif alla áhorfendur með stærð horna sinna og fegurð. Eftir sýninguna var kaffihlaðborð í Svalbarðsskóla.
Myndir frá sýningunni eru á myndasafni.