Almennt - fimmtudagur 10.mars 2011 - Daníel - Lestrar 9
Síðasta spilakvöldið var í gærkvöldi og þá voru veitt verðlaun fyrir flesta samanlagða slagi. Einnig voru veitt kvöldverðlaun eins og vanalega. Kvöldverðlaunin voru skemmtileg, egg, heimatilbúin sulta og fleira heimagert.
Þeir sem fengu flesta samanlagða slagi voru Hlynur Andri Friðriksson af yngri kynslóðinni, kvennaverðlaun fékk Elfa Benediktsdóttir og karlaverðlaun Daníel Hansen. Þau fengu öll málsverð á Eyrinni.