Almennt - þriðjudagur 11.október 2011 - Daníel - Lestrar 12
FIMMTUDAGURINN 13.OKTÓBER.
Við höfum fengið heimboð frá Lundarskóla um að koma í heimsókn þennan dag.
Við munum leggja af stað frá skólanum um 8:30 og byrja á morgunhressingu í Lundi. Þá förum við í skógarreitinn þar og söfnum okkur greinum og viði fram undir hádegi. Eftir hádegismat verðum við í smíðastofunni undir leiðsögn Guðmundar Arnar fram að skólalokum, auðvita með hléum. Klukkan 16:00 er skóla lokið í Lundi og þá förum við að Kópaskeri en þar mun Sigurður Sigurðarson dýralæknir taka á móti okkur kl.17:00 og sýna okkur innyfli úr kindum og fræða okkur um ýmislegt varðandi kindur og heilbrigði þeirra.Eftir þá kynningu förum við heim og allir verða keyrðir heim, ég mundi giska á að allir verði komnir heim fyrir kvöldmat.
Ég minni á að allir hafi með sér föt til útivistar, annað þarf ekki þar sem annað er í boði þeirra sem taka á móti okkur.
Kveðja, Daníel