Almennt - föstudagur 28.október 2011 - Daníel - Lestrar 7
Á fimmtudögum er farið i göngutúr í skólanum ef veður leyfir, annars er einhver hreyfing innandyra. Í gær fórum við Garðshringinn sem við köllum. Mikil þoka var og teygðist talsvert á hópnum svo þeir sem fyrsti voru sáu ekki þá sem ráku lestina. Flestir voru rúman klukkutíma í ferðinni en þeir sem síðast komu heim fóru hringinn á 105 mínútum.
Allir höfðu gott af göngutúrnum þar sem mikil veisla var í hádeginu þegar haldið var upp á afmælisdaga þeirra sem eiga afmæli á sumrin þegar ekki er skóli. Borð voru skreytt, forréttur var fyrst borinn fram síðan var aðalréttur og í lokinn eftirréttur.
r
