Íbúar

Grunnskólinn

SJÓFERÐ OG VÍSINDASTARF Í gær, þriðjudaginn, fórum við á sjó með Óla Þorsteins. Veðrið var dásamlegt, sólskin og logn. Við veiddum talsvert af fiski, við

SJÓFERÐ OG VÍSINDASTARF

með Óla skipstjóran
með Óla skipstjóran
Í gær, þriðjudaginn, fórum við á sjó með Óla Þorsteins. Veðrið var dásamlegt, sólskin og logn. Við veiddum talsvert af fiski, við fengum ýsu, þorsk, ufsa og makríl. Í dag mældum við alla fiskana og unnum ýmis rannsóknarstörf á þeim. Það sem ekki var notað til rannsóknastarfa var flakað og fryst og ætlum við að nota það seinna í vetur. Líklega höfum við veitt fisk í um 40 máltíðir. Margar myndir voru teknar og verða settar inn á heimasíðuna fljótlega. Á morgun höldum við áfram með þemavinnuna um fisk. Þá fáum við heimsókn frá Skeggjastöðum í Bakkafirði. Brynhildur og Halldór koma en Halldór hefur verið að vinna við eftirlit með fiskibátum og er líka gamall sjómaður. Hann kemur með nýjar tegundir af fiskum sem hann hefur safnað og ætlar að segja okkur frá ýmsu.



Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf