Fyrstu dagarnir í skólastarfinu eru ekki alveg með hefðbundnum hætti. Mikið hefur verið unnið úti, skordýr skoðuð og flokkuð,
blóm skoðuð og greind, sveppum safnað og þeir borðaðir. Þá höfum við tínt jurtir til að þurrka og nota í te og krydd.
Á hverjum degi hafa nemendur verið meira og minna úti við nám.