Almennt - þriðjudagur 03.janúar 2012 - Daníel - Lestrar 11

Venjulegt skólahald hófst í morgun að loknu jólaleyfi. Nemendur voru fegnir að hitta aftur skólafélaga og vini. Ekki dró úr ánægjunni að veður til útileikja er hið ákjósanlegasta, góður snjór til að byggja úr og svolítill skafrenningur. Mikið var byggt úr snjónum í dag.
Þá fengum við góða heimsókn en Ragnheiður Rós sem var nemandi hér í fyrra og er á Akureyri í vetur kom í heimsókn. Urðu þar fagnaðarfundir.