Íbúar

Grunnskólinn

Marsfréttabréf Kæru sveitungar. Erfiðustu mánuðir vetrarins eru febrúar og mars í mínum huga. Nú er að sjá á langtímaveðurspám að mars verði ekki svo

Marsfréttabréf

Kæru sveitungar.

Erfiðustu mánuðir vetrarins eru febrúar og mars í mínum huga. Nú er að sjá á langtímaveðurspám að mars verði ekki svo slæmur framan af og spá veðurklúbbar fremur góðum marsmánuði. Þetta gerir það að verkum að það kemur vorhugur í mann eins og veðrið hefur verið hér undanfarið. 

Veðráttan er svo ríkur hluti af allri okkar hugsun og stjórnaði öllu ennþá meira fyrir tugum eða hundruðum ára. Í dag eru vegir ruddir reglulega og allt gert til að fólk komist leiðar sinnar enda allt miðað við það að geta farið þangað sem fólk ætlar sér. Fyrsta tal þegar fólk hittist er um veðrið. Ég dvaldi í Ghana í Afríku fyrir nokkrum árum og á hverjum morgni fyrstu dagana hældi ég veðrinu, sól og um 40° hiti. Fyrst tók fólk undir þetta og samsinnti mér. En eftir nokkra daga fann ég að fólki fannst þetta dálítið undarlegt að vera alltaf að tala um veðrið, það er nefnilega alltaf eins þar, um 40° hiti og annað hvort regntími eða þurrkatími og eru engar breytingar þar á. Aftur á móti fannst mér dálítið undarlegt fyrst þegar fólk spurði mig hvernig snjórinn væri, hvort maður meiddi sig þegar hann lenti á manni, hvort hann rispaði mann þegar hannfyki á mann eða hvot maður gæti borðað hann. Fólk þar um slóðir hafði nefnilega aldrei upplifað snjó.
Daniel Hansen

SÍMASKRÁ

Nú eru nemendur að vinna að endurgerð símaskrár fyrir dreifbýli á Langanesi og Þistilfjörð. Sú sem gerð var fyrir tveimur árum er löngu uppurin og einnig hafa númer breyst, dottið út og komið inn ný.          Þið eigið von á heimsókn eða símhringingu þar sem þið eruð beðin um að fara yfir símanúmer á hverjum bæ og einnig netföng ef þið viljið láta birta þau. Við biðjum ykkur vinsamlegast að passa vel upp á að gefin séu upp rétt númer. Við höfum svo samband við ykkur til að fara yfir númerin því við viljum hafa þetta sem nákvæmast og réttast. Gott væri einnig að koma með sem flestar tillögur að þjónustunúmerum sem gott væri að hafa í símaskránni.                                                                                                                                   Foreldrafélag og skólastjóri

GÓUGLEÐI

Eins og áður hefur komið fram verður haldin Góugleði í skólanum föstudaginn 18.mars kl.19:00. Þar verða glæsilegar veitingar, skemmtiatriði og ball á eftir.  Þetta verður auglýst betur með dreifibréfi þegar nær dregur.

                                                                   Foreldrafélagið

 

UPPLESTRARKEPPNI

Árleg upplestrarkeppni fyrir skóla í Norður-Þingeyjarsýslu verður í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn fimmtudaginn 24.mars kl.14:00. Tveir nemendur munu fara úr skólanum, Margrét Brá og Friðrik Ágúst, bæði í 7.bekk. Undirbúningur  er hafinn. Þess ber að geta að allir eru velkomnir á keppnina og sérstaklega er vonast eftir að foreldrar keppenda, afar og ömmur og aðrir aðstandendur láti sjá sig.

SYNDUGA KONAN

Endursagnarverkefni í biblíusögum

 

 

Þetta er saga af Jesú syni Guðs og Maríu mey en hann Jesús fæddist í Betlehem. Þegar hann varð fullorðinn kenndi hann öllum um Guð og gerði alls konar kraftaverk.

Einu sinni á milli áranna 0-32 e.K. var Jesú á rölti og sá þar hermenn vera að draga konu og spurði:,,Hvert eruð þið að fara með þessa konu“?  ,,Við erum að fara með hana á torgið þar sem á að grýta hana“ svöruðu þeir. ,,Hvað gerði hún“?  ,,Hún elskaði ekki náungann eins og skrifað var í boðorðunum. Elska skaltu náungann.“ Svona lauk samtalinu en Jesú vildi fara niður á torg til að hjálpa henni svo hann gerði það. Nokkru síðar var búið að hlekkja konuna og allir tilbúnir að grýta hana en þá sagið einhver hermaðurinn: ,,Hvernig eigum við að skera úr um hver kastar fyrst“?  ,,Ég veit það“ sagði Jesú. ,,Hann sem aldrei hefur syndgað kastar fyrsta steininum.“ En enginn kastaði af því að allir nema Guð hafa syndgað.

                                                                   Friðrik Ágúst Egilsson


 

MATSEÐILL Í MARS

1.3., þriðjudagur: Lasanja og kartöflumús.               

2.3., miðvikudagur: Steiktur fiskur, kartöflur og hrásalat.

3.3., fimmtudagur: Kjötsúpa.

4.3., föstudagur: Grjónagrautur og slátur.

7.3., mánudagur: Soðið slátur og kartöflumús.

8.3., þriðjudagur: Fiskbollur, kartöflur og salat. Rjómabollur.

9.3., miðvikudagur: Afrískur pottréttur, ,,Flott og framandi“.

10.3., fimmtudagur: Steiktur  fiskur, hrásalat, kartöflur og hvítlauksbrauð.

11.3., föstudagur: Skyrsúpa, heimabakaðar bollur og rúgbrauð með kæfu.

14.3., mánudagur: Mexíkósk súpa og pastaréttur.

15.3., þriðjudagur: Hakk og spaghetti.

16.3., miðvikudagur: Fiskborgarar, sósa og salat.

17.3., fimmtudagur: Kjöt í karrý.

18.3., föstudagur: Soðinn fiskur með rúgbrauði og kartöflum.

21.3., mánudagur: Matur að vali Marinós.

22.3., þriðjudagur: Kjötbollur, kartöflur og salat.

23.3., miðvikudagur: Grænmetisréttur.

24.3., fimmtudagur: Kubbasteik, kartöflur, baunir og sulta.

25.3., föstudagur: Pylsuréttur.

28.3., mánudagur: Rjómalöguð súpa og heimabakaðar oreganobollur.

29.3., þriðjudagur: Gúllas og kartöflumús.

30.3., miðvikudagur: Fiskbollur, kartöflur og salat.

31.3., fimmtudagur: Kjötsúpa.                                                 Kveðja, Bjarnveig



Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf