Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskóla í Norður-Þingeyjarsýslu verður haldin í Félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn fimmtudaginn 24. mars n.k. og hefst kl. 14:00 Kependur eru nemendur úr 7. bekk Öxarfjarðarskóla, Grunnskóla Raufarhafnar, Svalbarðsskóla, Grunnskóla Þórshafnar og Grunnskóla Bakkafjarðar.
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskóla í Suður-Þingeyjarsýslu verður haldin í Salnum í Miðhvammi Húsavík föstudaginn 25. mars n.k. og hefst kl. 14:00.
Keppendur eru nemendur úr 7. bekk Borgarhólsskóla, Hafralækjarskóla, Litlulaugaskóla og Reykjahlíðarskóla.
Á milli upplestraratriða koma fram nemendur úr Tónlistarskólunum á svæðinu og flytja tónlist. Foreldrar og aðrir velunnarar skólanna eru hvattir til að koma og hlýða á það sem nemendurnir hafa fram að færa.
Fh. Undirbúningsnefndar
Sigurður Aðalgeirsson
Skólaþjónustu Norðurþings