Eins og undanfarin haust erum við með þemadaga þessa viku. Að þessu sinni er þemað fiskar og nýting þeirra. Við veiðum sjálf og
fáum einnig aðrar tegundir gefnar. Eftir að hafa rannsakað fiskana, mælt og vegið frystum við þá til að borða seinna. Útbúin
verða súlurit yfir stærð og þingd, teiknaðar ýmsar tegundir af fiskum, skoðað hvað þeir éta og ýmislegt fleira skemmtilegt.